Lýsing
Bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Skipholt 45, 105 Reykjavík. Íbúðarherbergi er í kjallara (skráð geymsla í fasteignaskrá) og heimilt er að leigja herbergið út. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla þjónustu, leik- og grunnskóla. Áhugaverð íbúð fyrir stóra fjölskyldu.
*** MÖGULEGAR LEIGUTEKJUR Á HERBERGI Í KJALLARA ***
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð 113,8 fm, þar af íbúðarhluti 103,3 fm, geymsla 2,2 fm og geymsla (íbúðarherbergi) 8,3 fm. Eignin skiptist í anddyri / hol, stofu / borðstofu (vestur svalir), eldhús, 3-4 svefnherbergi, svefnherbergisgang og baðherbergi. Einnig er geymsla og geymsla / íbúðarherbergi í kjallara. Sameiginlegt þvottahús / þurrkherbergi og vagna- og hjólageymsla í sameign.
Nánari lýsing.
Anddyri / hol: Komið er inn í rúmgott hol, á vinstri hönd er svefnherbergisgangur og til hægri er eldhúsið, skápar, eikarparket á gólfi. Úr holi er gengið út á vestur svalir, eikarparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum til vesturs, eikarparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg innrétting, bakarofn, helluborð, háfur, flísar milli skápa, borðkrókur, gólfhiti, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting, sturtuklefi, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergisgangur: Innfelldir fataskápar, eikarparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Inn af stofur, rúmgott, fataskápar, eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, fataskápur, eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi 3 - 4: Rúmgott, innfelldur hvítur fataskápur, eikarparket á gólfi. Búið er að sameina tvö svefnherbergi í eitt.
Geymsla / íbúðarherbergi: Í kjallara er 8,3 fm sérgeymsla sem er nýtt sem íbúðarherbergi og heimilt er að leigja það út, parket á gólfi.
Geymsla: Lítil 2,2 fm sérgeymsla í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi (frátekin snúra fyrir hverja íbúð) í kjallara og er hver íbúð er með sín eigin tæki. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Í kjallaranum er sameiginlegt baðherbergi með sturtuaðstöðu sem leigjendur herbergjanna geta nýtt sér.
Húsið: Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er húsið er steinsteypt með þremur stigagöngum, Skipholt 43-47, fjórar hæðir auk kjallara. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir íbúðinni réttur til byggingar á bílskúr að fengnu leyfi byggingarfulltrúans í Reykjavík.
Lóð: Sameiginleg 5280 fm lóð. Ný leiktæki fyrir börn á lóð. Sameiginleg bílastæði þar af eru fjögur með hleðslustöð fyrir rafbíla.
Búið er að endurnnýja alla glugga á austurhlið með hljóðeinangrandi gleri í eigninni.
Rúmgóð íbúð með þrem til fjórum svefnherbergjum og auka herbergi í kjallara. Hér er um að ræða vel skipulagða og vandaða íbúð á besta stað í Reykjavík þar sem stutt er í verslun og þjónustu og miðbærinn í göngufæri.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Hafðu samband og ég verðmet eignina þína þér að kostnaðarlausu.
- Hólmar Björn löggiltur fasteignasali í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.