Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

58

svg

49  Skoðendur

svg

Skráð  28. nóv. 2024

fjölbýlishús

Álftamýri 32

108 Reykjavík

66.900.000 kr.

768.966 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014255

Fasteignamat

57.900.000 kr.

Brunabótamat

40.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
87 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. desember 2024 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Álftamýri 32, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. desember 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Björgvin Þór Rúnarsson og Prima Fasteignasala kynna fallega eign við Álftamýri 32 merkt 303 fastanúmer 2014255.

Björt og falleg þriggja herbergja íbúð á 3ju hæð með glæsilegu útsýni í góðu vel staðsettu fjölbýli miðsvæðis í borginni. Íbúðin er skráð 87 fm en þar af er sér geymsla í kjallara 4,3 fm. 
Íbúðin var öll endurnýjuð fyrir nokkrum árum, eldhús, baðherbergi, gólfefni og hurðar. Húsinu hefur verið vel viðhaldið, meðal annars voru gerðar múr og gluggaviðgerðir og húsið málað á síðustu árum. Stigagangurinn var teppalagður, málaður og settar inn nýjar hurðar í byrjun árs 2023.

Lýsing eignar: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp og parketi á gólfi
Eldhús: Sérlega glæsilegt með hvítri innréttingu frá HTH og AEG tækjum með góðum borðkrók.  
Hjónaherbergi: parket á gólfi með góðum stórum fataskáp. 
Herbergi 2: parket á gólfi með góðum skáp
Baðherbergi: nýlega standsett, flísalagt í hólf og gólf með stórri flísalagðri sturtu og innréttingu.  
Stofa: Rúmgóð björt stofa og borðstofa með útgangi á góðar svalir til suðurs.  Harðparket er á gólfum. 
Snyrtileg og góð sameign í kjallara, sér geymsla þar og gott sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.  

Snyrtileg og góð sameign í kjallara, sér geymsla þar og gott sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. 

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. nóv. 2021
39.300.000 kr.
51.000.000 kr.
87 m²
586.207 kr.
1. júl. 2019
36.800.000 kr.
17.500.000 kr.
87 m²
201.149 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6