Lýsing
Miklaborg kynnir nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára í Kópavogi. Sunnusmári 9-13 er lyftuhús með 69 íbúðum í þremur stigagöngum. Íbúðirnar eru vel skipulagðar, á bilinu 64-193 fm. innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja öllum íbúðum. íbúðum er skilað án megin gólfefna. Bílastæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. Húsið er einangrað og klætt að utan og því viðhaldslétt. Smárinn er nýtt borgarhverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt er í alla helstu þjónustu og verslun.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann Axlesson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Laus strax - bókaðu skoðun - sýnum samdægurs !
Íbúð 209 – fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílakjallara.
Nánari lýsing eignar.
Forstofa með fataskáp. Eldhús með fallegri innréttingu frá Nobilia, lýsing er undir efri skápum. Í eldhúsi verður innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð, vifta og blástursofn. Stofa með gluggum til norðausturs. Svefnherbergin eru þrjú með fataskáp, útgengt frá hjónaherbergi á svalir til suðurs. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með spegli, sturta, upphengt salerni og handklæðaofni. Þvottahús með flísum á gólfi . Eigninni fylgir 9,7 fm. geymsla í kjallara og stæði í bílakjallara
Kaupendur greiða Skipulagsgjald 0,3% af væntalegu brunabótarmati. Áætluð afhending er Janúar 2024
Verktakinn er ÞG-verk sem hefur yfir 20 ára reynslu og hefur frá 1998 byggt þúsundir íbúða fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG-verk er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veita
Óskar Sæmann Axlesson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is