Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1954
182,7 m²
8 herb.
2 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Vel staðsett og töluvert endurnýjað 182,7 fm einbýlishús með 6 svefnherbergjum, 4 svefnherbergi í risi, 1 á hæðinni og 1 í kjallara. Húsið er kjallari hæð og ris. ásamt 90 fm sólpalli með skjólgirðingu.Í risi eru 4 svefnherbergi og baðherbergi með baðkari. Geymsluris yfir risi, einangrað.
Á hæðinni er flísalögð forstofa, inn af holi er svefnherbergi. Nýlega teppalagður stigi úr holi upp í ris. Gestasnyrting, með flísum á gólfi. Samliggjandi stofa og borðstofa, úr stofunni er gengið út á sólpall. Rúmgott eldhús með fallegri hvítri innréttingu, og borðkrók. Býtibúr inn af eldhúsi með glugga.
Gengið í kjallara úr holi, þar er unglingaherbergi, stórt þvottahús og útgrafið rými sem er nýtt sem dekkjageymsla. Útgengt úr kjallara á lóð.
Endurbætur á liðnum árum að sögn eiganda :
Einangrað að utan, múrað og steinað að utan 2017
Gluggar og gler á þremur stöðum 2017
Járn á þaki 2018
Útihurð 2024
Rafmagnstafla 2023, 3ja fasa rafmagn, gert ráð fyrir bílahleðslu
Skolplögn undir húsi 2013 og gólf endursteypt
Þrýstijafnarar í hitaveitugrind 2024
Sólpallur 90 fm 2020
Neysluvatnslagnir upp á bað í risi og í eldhús og baði á 1. hæð 2013.
Parket á neðri hæð 2024
Teppi á stigagang 2024.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. ágú. 2013
22.500.000 kr.
25.500.000 kr.
182.7 m²
139.573 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025