Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

33

svg

29  Skoðendur

svg

Skráð  11. des. 2024

fjölbýlishús

Fálkahlíð 5, IB 228

102 Reykjavík

76.900.000 kr.

962.453 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512629

Fasteignamat

53.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
79,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 12. desember 2024 kl. 12:00 til 12:30

OPIÐ HÚS/SÖLUSÝNING Fimmtudaginn kl. 12:00 - 12:30, Guðrún Antonsdóttir fasteignasali tekur á móti áhugasömum kaupenfum. Verið velkomin.

Lýsing

*** NÝTT Í SÖLU *** FORSALA OG ÞVÍ ENGÖNGU SÝNT Í EINKASÝNINGUM, HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 621-2020 ***
NÝ FULLBÚIN ÍBÚÐ MEÐ STÓRU 35,6FM ALRÝMI OG SÉR INNGANGI Í SÍÐASTA STIGAGANGI HJÁ DALHÚS. ÍBÚÐINNI FYLGIR BÍLASTÆÐI INNI Í LOKUÐU BÍLASTÆÐAHÚSI. 
Sundurliðun á kaupverði.
* Bílastæði inn, sem er ekki skráð inn í fermetra - 8.000.000kr
* Eignin sjálf og geymsla verð 68.900.000kr ( fermetraverð 862.327kr)
Samtals 76.900.000kr 


Guðrún Antonsdóttir kynnir með stolti nýjar íbúðir við Hlíðarenda í byggingu hjá DALHÚS, um er að ræða síðasta stigagang hússins. Glæsilegar íbúðir við FÁLKAHLÍÐ 5. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan, með  öllum gólfefnum, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti og ljósum.  Ljós eru innbyggð að hluta, kubbaljós, ljósakúplar og kastarar fylgja. Baðherbergi eru flísalögð, bæði veggir og gólf. Gólf á þvottahúsum eru flísalögð.

*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is. ***

Nánari lýsing eignar 228, 2ja. herbergja íbúð á annari hæð með sér inngang frá garði og svölum til vesturs
Forstofa með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp
Stofa og opið eldhús, hvít innrétting með efri og neðri skápum
Rúmgott svefnherbergi, með fataskáp. 
Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn.
Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi
Geymsla í kjallara
Sér bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi
Áætluð afhending er desmber - janúar 2025

Stutt lýsing húss:
Fálkahlíð 5. Er stórglæsilegt 16 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, brúnar eða gráar
* Fataskápar frá Parka, hvítir í herbergjum og forstofu
* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG eða
Electrolux og vifta frá Gíra
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* KR Ark sér um alla hönnun

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: https://hlidarendi.is

Dalhús hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.
Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.

Bílastæðahús og bílskúrar: 
Bílgeymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eiga eitt bílastæði.
Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið. 

Ytri frágangur og lóð.
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin. Að utan verður húsið frágengið á eftirfarandi hátt. Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná.  Frágengin niðurföll.  Húsið er að mestu einangrað og klætt að utan, en múraðir fletir eru málaðir.
Um svæðið og nærliggjandi: Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina og fleirra.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á
byggingaframkvæmd stendur.
Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. 

*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is. ***

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

img
Guðrún Antonsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Guðrún Antonsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Guðrún Antonsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur