Opið hús: Smyrilshlíð 14, 102 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 13. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. desember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkv. HMS 68,4 fm og þar af er geymsla skráð 7,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með harðparketi gólfi og yfirhafnaskáp.
Stofa er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi. Útgengt á 21,6 fm sólpall í suður og svo þaðan út í skemmtilegan sameiginlegan garð í miðju húsanna.
Eldhús með hvítri innréttingu í alrými með stofu. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er inn á baðherbergi.
Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi nr. B135. Bílgeymsla er upphituð (frostfrí) með loftræstingu.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi í sameign í kjallara hússins.
Hjólastæði með festingum í bílakjallara.
Stutt lýsing húss:
Smyrilshlíð 14. Er stórglæsilegt 14 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum.
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar og svartar.
* Pax fataskápar, hvítir í herbergjum og forstofu
* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG, nema vifta frá Gíra
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* KR Ark sá um alla hönnun
Skemmtilegur garður í miðju með leiktæki fyrir börnin.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.