Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
svg

186

svg

165  Skoðendur

svg

Skráð  17. des. 2024

fjölbýlishús

Bríetartún 6

105 Reykjavík

59.900.000 kr.

880.882 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2009601

Fasteignamat

50.050.000 kr.

Brunabótamat

29.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1945
svg
68 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 23. desember 2024 kl. 17:00 til 17:40

Opið hús: Bríetartún 6, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. desember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:40.

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna bjarta, vel skipulagða og mikið uppgerða 68fm, 3 herbergja íbúð að Bríetartúni 6, 105 Reykjavík. Vel skipulögð með stóru opnu alrými með samliggjandi stofu og uppgerðu eldhúsi með eyju, 2 svefnherbergjum, uppgerðu baðherbergi með "walk in" sturtu með gleri. Útgengt er út á suðvestur svalir úr alrými. Stór og gróin inngarður á milli húsa að Bríetartúni og Laugarveg með opnu leiksvæði og körfuboltavelli. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur með fjölbreytta verslun og þjónustu, veitinga- og kaffihús allt um kring.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Fasteignamat fyrir árið 2025 er 53.900.000kr skv. HMS.

Hverfið er að fá allt mikla og frábæra upplyftingu í kringum uppbyggingu á Hlemmtorgi. Þar meginmarkmið breytinganna er að skapa gott vistvænt umhverfi á Hlemmi fyrir gangandi vegfarendur, stað sem mun gegna mikilvægu hlutverki fyrir mannlíf og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Hér má lesa sig til um uppbyggingu í kringum Hlemmtorg

Nánari lýsíng:
Hol:
Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Gott barnaherbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með "Walk in" sturtu, upphengdu klósetti, vask og spegli.
Alrými: Samliggjandi eldhús og stofa. Gluggar snúa út í gróin garð til suðurs.
Stofa: Björt og rúmgóð, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Uppgert með eyju. Gott skápa og vinnupláss. Samliggjandi stofu. Útgengt út á suður svalir.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 2,8fm

Sameign: Þvottahús í sameign. Sér tengill fyrir þvottavél og þurrkara.

Um er að ræða fallega og mikið uppgerða 3 herbergja íbúð á fyrstu hæð á vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur. Mikil uppbygging á svæðinu með tilkomu Hlemmtorgs.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fastm.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. nóv. 2011
13.000.000 kr.
18.900.000 kr.
68 m²
277.941 kr.
9. jún. 2006
11.845.000 kr.
15.900.000 kr.
68 m²
233.824 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík