Lýsing
*** EIGNIN ER SELD MEÐ VENJUBUNDNUM FYRIRVÖRUM ***
Trausti fasteignasala kynnir bjarta þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í litlu fjölbýlishúsi við Hraunteig 22.
Íbúðin er skráð 68,9 fm með geymslum.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og svalir. Í kjallaranum eru tvær geymslur og sameiginlegt þvottahús.
Nánari lýsing:
Anddyri er með fataskáp, parketi og flísa á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan utangengt á svalir.
Eldhús er með dökkri innréttingu og er opið við stofu.
Baðherbergi er flísalagt, með sturtuklefa og snyrtilegri innréttingu.
Nýlega hafa verið settar drenlögn í kringum húsið.
Eignin er vel staðsett rétt við Laugardalinn í Reykjavík og stutt er í alla helstu þjónustur. Stutt er í Laugardalinn og Laugardalslaug, World Class, Skautahöllina, Grasagarðinn, Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn og fleira. Skólarnir og leikskólarnir í grenndinn eru Hof, Laugasól og Sunnuás og grunnskólarnir Laugalækjaskóli og Laugarnesskóli.
Nánari upplýsingar um eignina veita Mirabela Aurelia Blaga löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, eða á netfanginu mirabela@trausti.is og Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.