Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
svg

19

svg

19  Skoðendur

svg

Skráð  18. des. 2024

fjölbýlishús

Eddufell 6 602

111 Reykjavík

109.900.000 kr.

709.948 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531293

Fasteignamat

35.500.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
154,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

***SÉRLEGA GLÆSILEG ÞAKÍBÚÐ (PENTHOUSE), FRÁBÆRT ÚTSÝNI, TVENNAR SVALIR, HJÓNASVÍTA MEÐ SÉR BAÐHERBERGI OG FATAHERBERGI, SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR, STEINN Á BORÐUM***

Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Glæsileg 4ra herbergja þakíbúð (penthouse) með frábæru útsýni í vönduðu nýju lyftuhúsi. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum í nóvember 2024. Eignin sem er í heildina skráð 154,8 fm skiptist í eldhús, stofu, og borðstofu sem flæða saman í opnu alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Hjónasvítu með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi á svalir. Tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og 9,3 fm geymslu. Vel hefur verið hugað að allri hönnun og efnisvali, vandaðar innréttingar sem eru sérsmíðaðar frá viðurkenndum framleiðanda. Eldhústæki frá Siemens. Fallegur Dekton steinn frá REIN í eldhúsi og á baðherbergjum. Hvítar innihurðir frá Birgisson með svörtum húnum. Fallegt parket á alrými og svefnherbergjum. Baðherbergi og þvottahús flísalagt. 
Nánari upplýsngar veitir Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is


Forstofa: Sérsmíðaður fataskápur í ljósum beige lit. Parket á gólfi.
Alrými; Eldhús/Stofa/Borðstofa: Íbúðin er mjög opin og björt, eldhús, stofa og borðstofa flæða vel saman í alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Sérsmíðaðuð eldhúsinnrétting frá viðurkenndum framleiðanda, UAB Koalos Medis (Litháen). Skápar í eldhúsi ná upp í loft og eru í ljósum beige lit. Efri skápar með viðaráferð. Mjúklokur á skúffum og skápahurðum. Dekton steinn frá REIN á borðum. Spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Siemens. Parket á gólfi.
Hjónasvíta: Afar rúmgóð með sér baðherbergi og fataherbergi. Útgengi út á svalir. Baðherbergi með flísalagðri "walk in" sturtu með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með Dekton steini frá REIN á borði og speglaskápur. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn. Parket á gólfi í hjónaherbergi og fataherbergi. 
Svefnherbergi #2: Er með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Parket á gólfi.
Svefnherbergi #3: Er með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Parket á gólfi.
Baðherbergi #2: : Flísalögð "walk in" sturta með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með Dekton steini frá REIN á borði og speglaskápur. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn.
Þvottahús: Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Flísar á gólfi.
Geymsla: sérgeymsla á jarðhæð
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Djúpgámar á lóð.

Eddufell 2-6 er vandað lyftuhús á 6 hæðum. Á 3.-5.hæð eru vel skipulagðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir og á 6.hæð eru tvær glæsilegar 4ra herbergja þakíbúðir (penthouse):

Stúdíó/vinnustofa 201: 38,7 fm. SELD
Stúdíó/vinnustofa 202: 44,1 fm. SELD
Stúdíó/vinnustofa 203: 48,9fm. 
Stúdíó/vinnustofa 204: 46,2 fm. 
Stúdíó/vinnustofa 205: 40,8 fm.
Stúdíó/vinnustofa 206: 40,3 fm. 
Stúdíó/vinnustofa 207: 35,7 fm. 
Stúdíó/vinnustofa 208: 31,8 fm. 

Íbúð 301: 2ja herb. 57,0 fm. SELD
Íbúð 302: 3ja herb. 82,1 fm. 
Íbúð 303: 3ja herb. 81,7 fm. 
Íbúð 304: 3ja herb. 74,1 fm. 
 
Íbúð 401: 2ja herb. 56,8 fm. SELD
Íbúð 402: 3ja herb. 85,8 fm. 
Íbúð 403: 3ja herb. 83,0 fm. 
Íbúð 404: 3ja herb. 74,1 fm. 

Íbúð 501: 2ja herb. 56,7 fm. 
Íbúð 502: 3ja herb. 80,7 fm. 
Íbúð 503: 3ja herb. 81,7 fm. 
Íbúð 504: 3ja herb. 74,5 fm. 

Íbúð 601: 4ra herb: 138,3 fm. Söluverð 99.900.000 
Íbúð 602: 4ra herb: 154,8 fm. Söluverð 109.900.000 

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone