Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Grettisgata 32

101 Reykjavík

76.000.000 kr.

860.702 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007864

Fasteignamat

66.300.000 kr.

Brunabótamat

40.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1962
svg
88,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Gimli fasteignasala kynnir Grettisgata 32, 101 Reykjavík.

Falleg og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í góðu steinsteyptu fjölbýlishúsi í miðborginni. Einstakt útsýni er úr íbúðinni til suðurs að Hallgrímskirkju frá stofu, eldhúsi og svölum og til norðurs úr herbergjum yfir miðborgina og Esjuna. Íbúðin er skráð 88,3 fm en auk þess eru tvær geymslur, önnur í risi og hin í kjallara sem eru ekki inn í skráðum fermetrum eignarinnar.

Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninni


Lýsing eignar:
Komið er inn í forstofu með fataskáp. Þaðan er gengið inn í bjart opið rými sem er stofa, borðstofa og eldhús, útgengt er út á suðursvalir úr stofu/eldhúsi. Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri innréttingu og steinborðplötu. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni sem snúa bæði í norður. Inn af stærra svefnherbergi er fataherbergi. Minna svefnherbergið er með fataskáp. Fallegt eikarparket er á íbúðinni. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél. Sameiginlegar útsýnissvalir eru á þaki með aðgengi úr risi. 

Grettisgata 32 er einstaklega vel staðsett hús og íbúðin falleg með björtum gluggum, suðursvölum og einstöku útsýni í göngufæri við mikla þjónustu og afþreyingu í miðborginni.

Eignin Grettisgata 32 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-7864, birt stærð 88.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veita Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse löggiltur fasteigna- og skipasali, s. 792-7576, gudmunda@gimli.is eða Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, s. 698-1164, dr@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. nóv. 2022
47.200.000 kr.
71.500.000 kr.
88.3 m²
809.740 kr.
10. sep. 2014
23.500.000 kr.
31.500.000 kr.
88.3 m²
356.738 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone