Lýsing
VINSAMLEGAST BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS
Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Hlíðarenda, merkt 0326.
Húsið er vel staðsett innan hverfisins, með útsýni yfir íþróttasvæði Vals.
Birt stærð eignar er skráð 140,7 fm. hjá FMR, þar af er 30,9 fm. sérgeymsla innaf bílastæði.
Að auki er 44,8 fm. LOKAÐ stæði í bílageymsluhúsi, merkt C19, sem telur EKKI í fermetrafjölda íbúðar.
Lofthæð í bílskúr og geymslu er um fimm metrar, sem gefur möguleika á millilofti.
Ýttu hér til að fá sent söluyfirlit
Einstakt og mjög vandað fjölbýlishús með lyftu við Hlíðarenda.
Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar, Miele tæki, Quarts á borðum. Ljósahönnun frá LUMEX.
Nánari lýsing:
Parketlögð forstofa með vönduðum fataskáp frá JKE sem nær upp í loft.
Flísalagt gestabaðherbergi með "walk-in" sturtu. Upphengt salerni, handklæðaofn, frístandandi vaskur og blöndunartæki frá Tengi.
Stórt eldhús er opið við stofu með miklu skápaplássi. Quartz borðplata frá Granítsmiðjunni í eyju, sem búið er að koma fyrir auka rafmagnstenglum. Niðurfellt spanhelluborð og Elica gufugleypir. Miele bökunarofn í vinnuhæð, ásamt Temptech vínkæli. Innfeld uppþvottavél frá Miele og innfeldur ísskápur frá Bosch. Lýsing undir efri skápum.
Inn af eldhúsi er þvottahús með ræstivaski og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Björt falleg stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir til norðurs og austurs. Viðarklætt svalargólf.
Tvö parketlögð svefnherbergi með góðum fataskápum frá JKE.
Við hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi með verulega miklu skápaplássi.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. "Walk-in" sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, frístandandi vaskur og blöndunartæki frá Tengi.
Rúmgóð hjóla og vagnageymsla í sameign.
Húsið var byggt 2020 og klætt að utan með álklæðningu. Gluggar eru vandaðir danskir ál/tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
Aukin lofthæð er í húsinu 280 cm og gólfsíðir gluggar. Innréttingar eru frá danska fyrirtækinu JKE.
Blöndunartæki, handlaugar og salerni eru frá Tengi.
Sameiginlegur skjólgóður garður. Upphitaðar gönguleiðir og snjóbræðsla í inngarði.
Bílakjallarinn er á tveimur hæðum og í honum er fjöldi bílskúra auk hefðbundinna bílastæða.
Húsið er hannað af Alark Arkitektum.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.