Lýsing
Bókið einkaskoðun - laus við kaupsamning !
Miklaborg kynnir vel skipulagða þriggja herbergja íbúð við Hallakur 4b í Garðabæ. Eignin er skráð samtals 115,9 fm, þar af er geymsla 13,4 fm. Eignin skipist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Svalir frá stofu í suðvestur. Gott útsýni frá stofu. Tvö svefnherbergi. Þvottahús og baðherbergi með baðkari og sturtuklefa.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is
Hallakur 4b er forsteypt þriggja hæða hús. Sex íbúðir eru í húsinu. Blokkin er einangruð að utan og klædd málmi. Íbúðin er á 2. hæð skráð 102,5 fm og sérgeymsla í kjallara 13,4 fm. Sameiginleg bílastæði á lóð fyrir framan hús.
Nánari lýsing
Eldhús með ljósri innréttingu, gott skápapláss. Gert ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Stofa og Borðstofa í alrými eignar. Rúmgóðar svalir frá stofu í suðvestur með góðu útsýni.Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Sér þvottahús innan íbúðar. Parket á gólfi í alrými. Flísar á votrýmum.
Vel skipulögð og björt eign þar sem stutt er í þjónustu og leikskólann Akra.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is