Lýsing
FASTMOS kynnir: Björt 60 m2, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Háaleitisbraut 41 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Tvær sérgeymsla eru í kjallara. Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Eignin er vel staðsett í rólegum botnlanga við Háaleitisbraut, miðsvæðis í Reykjavík. Góð bílastæði og góð sameiginleg lóð. Stutt er í leik- og grunnskóla og vinsæl útivistarsvæði. Öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fatahengi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir til suðurs með fallegu útsýni.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, salerni, handlaug og baðkari með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergið er með dúk á gólfi og fataskápum.
Sérgeymslur í kjallara eru tvær, önnur 3,6 m2 en hin 1,2 m2 auk sérskáps með hillum.
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæðinni með sameiginlegum þvottavélum og þurkara ásamt þurrkherbergi.
Hjólageymsla er einnig í sameign.
Nýlegar endurbætur samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi:
2020-2021 voru gerð upp þvottahús og þurrkherbergi í sameign.
2022 var gert við norðurhlið hússins, ytra byrði og gluggar.
2023 hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla
Verð kr. 59.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.