Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
einbýlishús

Furuhjalli 5

200 Kópavogur

147.500.000 kr.

630.881 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2061001

Fasteignamat

144.550.000 kr.

Brunabótamat

109.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1989
svg
233,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.

Lýsing

Furuhjalli 5 Kópavogi

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallegt 7 herbergja 233,8 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin skiptist í 101,7 fermetra aðalhæð, 101,7 fermetra neðri hæð og 30,4 fermetra bílskúr, samtals 233,8 fermetrar að stærð. Um er að ræða afar vel staðsett hús í grónu fjölskylduhverfi við Furuhjalla 5 í Kópavogi. Húsið er afar sjarmernandi með mikilli lofthæð, stórum gluggum og fallegu gegnheilu fiskibeinaparketi.

Aðalhæðin (efri hæð): Er vel skipulögð með rúmgóðum alrýmum og útgengi á stórar svalir til suðurs með fallegu útsýni. Stofa og borðstofa eru samliggjandi og er eldhús að hluta til opið við stofur. Góður borðkrókur er staðsettur við eldhús. Gluggar snúa inn í bakgarð hússins til suðurs. Rúmgóð forstofa, gestasnyrting og eitt svefnherbergi er staðsett á efri hæð. Inngengt er í bílskúr frá efri hæð.

Afar fallegur steyptur stigi er á milli hæða.

Neðri hæð: Komið er niður í hol og þar er fjölskyldurými/sjónvarpsstofa. Útgengi í bakgarð frá sjónvarpsrými. Fjögur svefnherbergi eru á neðri hæð, baðherbergi, þvottaherbergi og fataherbergi. 

Lóðin er 616,0 fermetrar að stærð. Tyrfður garður til suðurs með fallegum trjágróðri. Lóðin er skjólgóð og með afgrirtri viðarverönd með heitum potti. Framan við hús er hellulögð stétt að húsi og fyrir framan bílskúr. 

Fasteignamat ársins 2024 er kr. 144.550.000,-

Nánari lýsing:

Aðalhæð.
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í lofti.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Salerni, vaskur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I: Er staðsett við forstofu/inn af stofu. Parket á gólfi og gluggi til norðurs. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í lofti.
Setustofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum suðurs. Mikil lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Arinn og útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Fallegt útsýni frá svölum.
Borðstofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs. Borðstofa er opin við setustofu og hluta til við eldhús. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum.
Eldhús: Með parketi á gólfi og eldhúsinnréttingu. Aukin lofthæð, innfelld lýsing í loftum og lýsing undir efri skápum. Gluggar til suðurs og góður borðkrókur. Tengi fyrir uppþvottavél, stæði fyrir tvöfaldan kæliskáp, stórt spansuðuhelluborð og stál háfur.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr frá aðalhæð. Gluggar til austurs og suðurs. Rafmagns bílskúrshurðaopnari. Epoxy gólf og geymsluloft að hluta.

Neðri hæð: Gengið er á milli hæða um afar fallegan steyptan stiga með parketi og fallegu handriði.
Hol: Með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu.
Sjónvarpsrými: Með flísum á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til suðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs. 
Svefnherbergi III: Er rúmgott með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með tvöföld sturta. Upphengt salerni, innrétting við vask og handklæðaofn. Gluggar til vesturs og útloftun.
Þvottaherbergi: Með epoxy á gólfi og útloftun.
Fataherbergi/geymsla: Er staðsett inn af þvottaherbergi. Epoxy gólf, hillur og fatahengi.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi V: Er stórt með sérinngang frá austurshlið lóðar. Gluggar til austurs og suðurs. Væri hægt að útbúa útleigueiningu úr þessu rými þar sem lagt er fyrir klóaklögnum inn í rýmið.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í lokuðum botnlanga við Furuhjalla í Kópavogi þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði og alla verslun og þjónustu. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur