Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - La Zenia

953 Spánn - Costa Blanca

39.400.000 kr.

452.874 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9200503

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
87 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR Í SÖLU Í LA ZENIA:
*RÚMGÓÐAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*

Glænýjar og vandaðar 3ja eða 4ra herb. íbúðir á frábærum stað í  La Zenia,  örstutt göngufæri frá La Zenia Boulevard og þægilegur göngutúr á ströndina. Góðir golfvellir á svæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli.  Göngufæri í fjölmargar verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. 

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum samtals 40 íbúðum. Íbúðirnar eru  með tveimur eða þremur svefnherbergjum og  tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Tvennar svalir og sjávarútsýni frá íbúðum á efri hæðum. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með stórri sér verönd, miðhæðum með  svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og  einka þaksvölum. Góð sameign með sundlaug,

Frábær staðsetning, stutt á fallega hvíta  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í næsta nágrenni og örstutt göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. 
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Frábærar íbúðir til útleigu.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK.
3ja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.  Verð frá 262.900 Evrum (ISK 39.400.000, gengi) + kostnaður við kaupin, ca. 13%
4ra herbergja íbúðir UPPSELDAR í bili, nýjar íbúðir væntanlegar í nýjum áfanga.

Hægt er að fá þær afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar u m fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, 
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.