Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Rúnar Samúelsson
Andri Sigurðsson
Þórey Ólafsdóttir
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Þórarinn Thorarensen
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Vista
raðhús

Árakur 4

210 Garðabær

169.900.000 kr.

732.643 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2300545

Fasteignamat

152.750.000 kr.

Brunabótamat

104.540.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
231,9 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur kynna í einkasölu bjart og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á skjólsælum stað í Akrahverfinu. Stofa og eldhús í opnu rými, þrjú til fjögur svefnherbergi, fataherbergi, sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi, tvennar svalir, afgirtur garður og rúmgott bílastæði í innkeyrslu með hitalögn. Gólfhiti á neðri hæð hússins og votrýmum efri hæðar. Frábær staðsetning og stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og einnig matvöruverslanir, heilsugæslu og fleira.

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit en annars veitir Þórey allar frekar upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is

Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 231,9 fm en þar af er bílskúr 27,2 fm.

Nánari lýsing neðri hæðar:

Forstofa, flísalögð með góðum fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt að hluta með gólfhilta, innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu.
Vinnuherbergi (8,2 fm), flísalagt. Hægt að nýta sem svefnherbergi en skráð sem geymsla á teikningum.
Eldhús með góðri innréttingu og stein á borðum, mikið skápapláss, innbyggð tæki og bakaraofn í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, parket á gólfi og útgengt á afgirta verönd.
Bílskúr (27,2 fm), innangengt frá forstofu.

Steypur parketlagður stigi á milli hæða, gler- og stálhandrið.

Nánari lýsing efri hæðar:
Sjónvarpsherbergi (17 fm), mjög bjart og rúmgott, parket á gólfi og útgengt á NV svalir (10,2 fm). Hægt að loka þessu rými af og bæta við svefnherbergi.
Hjónaherbergi með fataherbergi (24,1 fm), parket á gólfi og útgengt á SA svalir (12,8 fm)
Barnaherbergi I (16,4 fm) með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II (18,8 fm) með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf í gólf með gólfhita, innréttingu, upphengdu salerni, baðkari og walk-in sturtu.
Þvottahús, flísalagt með gólfhita og innréttingu

Húsið er klætt með láréttri báraðri málmklæðningu og keramik flísum. Allur frágangur að utan tryggir lágmarksviðhald. Þakplata (filigran með ásteypulagi) er einangruð með plasteinangrun sem er varin með þakdúk sem haldið er niðri með harpaðri möl. Gluggar eru úr timbri og áli og eru glerjaðir með tvöföldu K-gleri (aukið einangrunargildi). Svalahandrið eru úr hertu gleri. Lóð fullfrágengin með hellulagðri innkeyrslu með snjóbræðslu. Afgirt með skjólvegg nv baklóð, hellulögð verönd, gras og timburpallur.

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

img
Þórey Ólafsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Þórey Ólafsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. nóv. 2009
51.180.000 kr.
50.900.000 kr.
231.9 m²
219.491 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Þórey Ólafsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur