Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Elín Viðarsdóttir
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfholt 14a

220 Hafnarfjörður

89.900.000 kr.

650.507 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073238

Fasteignamat

71.900.000 kr.

Brunabótamat

57.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
138,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir 4ra herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr í Álfholti 14a í Hafnarfirði. Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum í tvíbýli í keðjuhúsaklasa á vinsælum stað örstutt frá skóla og leikskóla. Góð bílastæði við húsið.

Samkvæmt fasteignaryfirliti frá HMS er eignin skráð 138,2 fm á stærð og skiptist í 107,2 fm íbúðarými og 31 fm bílskúr. 

Eignin skiptist í forstofu, þrjú stór svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og bílskúr.

Eignin er laus til afhendingar.

Þetta er spennandi eign sem er vert að skoða.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Forstofa: með fatahengi, flísum á gólfi og hurð inn í bílskúrinn.
Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi á gólfi.
Bílskúr: 31 fm með bílskúr með heitu og köldu vatni og geymslulofti.
Stigi: stigi upp á efri hæðina með teppi.

Efri hæð:
Stofa: með teppi á gólfi, góðri lofthæð og útgengi á suður svalir.
Eldhús: hvítri og blárri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, loftglugga og flísum á gólfi.
Baðherbergi: með baðkari, sturtu, innréttingu, aðstöðu fyrir þvottavél, þurrkara og flísum á gólfi.
Svefnherbergi II: mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: mjög rúmgott með parketi á gólfi. 

Nánari upplýsinga veitir:
Snorri Björn Sturluson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 699 4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

img
Snorri Björn Sturluson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík