Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

53

svg

53  Skoðendur

svg

Skráð  24. apr. 2024

fjölbýlishús

Hlíðarfótur 19

102 Reykjavík

95.900.000 kr.

995.846 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512622

Fasteignamat

60.350.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
96,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

*** HÆGT ER AÐ SKOÐA OG ALLA DAGA *** ÍBÚÐINNI FYLGIR BÍLASTÆÐI INNI Í LOKUÐU BÍLASTÆÐAHÚSI. ÍBÚÐIN ER Í BYGGINGU OG SKILAST FULLBÚIN í MAÍ. 
Guðrún Antonsdóttir kynnir með stolti nýjar íbúðir við Hlíðarenda, glæsilegar íbúðir við HLÍÐARFÓT 19. Byggingaraðli er DALHÚS. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan, með gólfefnum, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti og ljósum.  Ljós eru innbyggð að hluta, kubbaljós, ljósakúplar og kastarar fylgja. Baðherbergi eru flísalögð, bæði veggir og gólf. Gólf á þvottahúsum eru flísalögð.

Nánari lýsing eignar 221
,  3ja. herbergja íbúð á annari hæð með svölum og sér verönd
Forstofa með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp
Stofa og opið eldhús, hvítt innrétting með eyju. Gengið er út á SUÐUR svalir frá stofu/eldhúsi 
Rúmgóð tvö svefnherbergi, með fataskáp. Gengið út á stóran lokað pall ( mynd í auglýsingu er af pallinum)
Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn.
Sér þvottahús með flísum á gólfi
Geymsla í kjallara
Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi
Áætluð afhending er 31 maí 2024 eða fyrr

Stutt lýsing húss:
Hlíðarfótur 19. Er stórglæsilegt 18 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, svartar eða gráar
* Fataskápar frá Parka, hvítir í herbergjum og forstofu
* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG eða
Electrolux og vifta frá Gíra
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* KR Ark sér um alla hönnun

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: https://hlidarendi.is

Dalhús hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.
Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.

Bílastæðahús og bílskúrar: 
Bílgeymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eiga eitt bílastæði.
Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið. 

Ytri frágangur og lóð.
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin. Að utan verður húsið frágengið á eftirfarandi hátt. Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná.  Frágengin niðurföll.  Húsið er að mestu einangrað og klætt að utan, en múraðir fletir eru málaðir.
Um svæðið og nærliggjandi: Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina og fleirra.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á
byggingaframkvæmd stendur.
Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. 
Myndir af útsýni eru teknar frá svölum á fjórðu og fimmtu hæð við Hlíðarfót 19.

*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is. ***

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

img
Guðrún Antonsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Guðrún Antonsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Guðrún Antonsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur