












Lýsing
Miklaborg kynnir: Mjög fallega bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð. Rúmgott alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa ásamt sjónvarpsholi renna saman í fallegu flæði með stórum gluggum og eldhús aðeins afstúkað. 3 svefnherbergi og bað á sér svefnherbergisgangi. Eigninni fylgir bílskúrsréttur. Eign sem er einstaklega snyrtileg að innan sem utan. Allar nánari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Lýsing eignar: Forstofa/hol: fatahengi, léttur veggur var tekinn niður í holinu sem gerir aðkomuna opna og rúmgóða. Setustofa/borðstofa: rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur með stórum gluggum sem vísa í suður með einstöku útsýni. Útgengi á suðursvalir með útsýni. Eldhúsið er opið til hálfs að borðstofu og með tímalausri innréttingu og glugga með útsýni og borðkrók.
Svefnálma: á vinstri hönd við hol. Stór fataskápur á ganginum. Þrjú svefnerbergi, hjónaherbergið er með stórum fataskáp. Annað barnaherbergið er með fataskáp. Baðherbergi í svefnálmu: Hvítar flísar og snyrtileg viðarinnrétting á baði og pnanlegur gluggi. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Þvottahús í sameign er mjög snyrtilegt og hver og einn hefur sína þvottavél.
Gólfefni: Náttúru- leirflísar á alrými, ljóst viðarparket á svefnherberjum og svefnherbergisgangi en flísar á baði. Góð staðsetning innst í botnlanga, í góðri fjarlægð frá umferð, stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einstaklega snyrtileg og falleg eign. Í eignaskiptayfirlýsingu er skráður bílskúrsréttur fyrir íbúðina en sækja þarf um leyfi til að byggja hann til Reykjavíkurborgar ef nýr eigandi vill byggja bílskúr.
Samkvæmt FMR er íbúðin skráð 115,6 fm og geymsla í kjallara 7,5 fmUpplýsingar veitir: Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is