Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Skessugil 18 íbúð 101

603 Akureyri

55.900.000 kr.

603.020 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2242685

Fasteignamat

48.800.000 kr.

Brunabótamat

42.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
92,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Skessugil 18 íbúð 101 - Falleg og mjög vel umgengin 3ja - 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 92,7 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu sem getur nýst sem 3ja svefnherbergið.

Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum máluðum fataskáp.
Í eldhúsi er vönduð spónlögð innrétting með flísum á milli skápa með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Opnað hefur verið milli eldhúss og stofu með því að taka niður hluta af vegg og afmarkast þau rými nú með veggfastri eldunareyju. Ljóst harðparket á gólfi og hurð út á rúmgóða steypta verönd með timbur skjólveggjum.
Stofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi.  
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og spónlögðum fataskápum. 
Baðherbergi er með dökkum kork flísum á gólfi og ljósum flísum hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahús er á milli forstofu og geymslu. Þar er harðparket á gólfi og hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla er inn af þvottahúsi og nýtist í dag sem 3ja svefnherbergið. Þar er harðparket á gólfi, sérsmíðað upphækkað rúm og opnanlegur gluggi.

Annað
- Rúmgóð steypt verönd með timburskjólveggjum. Geymslukassar eru á veröndinni áfastir við skjólveggi. 
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir framan húsið. 
- Nýlegt harðparket á gólfum.
- Snyrtileg og vel umgengin íbúð á vinsælum stað í Giljahverfi. 
- Veggfastir skápar á gangi og í stofu fylgja með.
- Snjóblásari er til fyrir Skessugil 18-20-22.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. nóv. 2023
40.950.000 kr.
53.500.000 kr.
92.7 m²
577.131 kr.
23. júl. 2019
31.300.000 kr.
35.200.000 kr.
92.7 m²
379.720 kr.
30. maí. 2008
14.690.000 kr.
18.900.000 kr.
92.7 m²
203.883 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone