Lýsing
Brekkustígur 14,101 Reykjavík seldist á einu opnu húsi og er í fjármögnunarferli. Mjög tilboð bárust í eignina og er mjög mikil eftirspurn eftir 4ra herbergja íbúðum með í miðbænum og nærliggjandi póstnúmerum. Margir kaupendur sem eru ekki með fyrirvara um sölu. Við erum með 15 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.
Á hvað eru 4ra herbergja íbúðir í 101Reykjavík að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum í 101 Reykjavík
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu
Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu mér á TikTok
4ra herbergja íbúð á efstu hæð við Brekkustíg 14, 101 Reykjavík. 3 svefnherbergi, þar af 2 mjög rúmgóð. Íbúðin er skráð 103,2 fm og þar af er geymslan 4,1 fm. Hiti í lögnum fyrir framan hús.
Endurbætur samkvæmt ástandsskýrslu seljanda:
2021: Skólplagnir myndaðar, brotið upp það sem þurfti og skipt þar um, restin var fóðruð. 2021: Skipt um neysluvatnslagnir. 2021: þakið var málað, 2020: Allir gluggar yfirfarnir og skipt út eftir þörfum. 2004 var skipt um þakjárn, pappa og rennur, kvistveggir klæddir með Stonflex.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR BREKKUSTÍG 14. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Smelltu hér fyrir teikningar af húsinu
Gengið er inn um sameiginlegan inngang. Á stigapalli er aðgengi að sameiginlegu geymslurisi fyrir húsið sem og sérgeymsluskápur á gangi. Gengið er inn í forstofu með parketi á gólfi og fatahengi. Eldhús er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápar, flísar á milli skápa, korkur á gólfi, borðkrókur og gluggi í eldhúsi sem snýr yfir garðinn. 3 svefnherbergi eru í íbúðinni, stærri herbergin með harðparketi og minna herbergið með parketi á gólfi, 2 eru mjög rúmgóð með fallegum kvistgluggum. Stofan er með parketi á gólfi og útgengt á svalir sem snúa yfir garðinn. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting, handklæðaofn og salerni.
Sameign: sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél. Hjóla- og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði