Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ásdís Ósk Valsdóttir
Guðbrandur Jónasson
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Böðvar Reynisson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Jóhanna K. Gustavsdóttir
Pétur Ísfeld Jónsson
Vista
fjölbýlishús

Grettisgata 2

101 Reykjavík

74.700.000 kr.

1.036.061 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2006177

Fasteignamat

62.000.000 kr.

Brunabótamat

32.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1905
svg
72,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Garður
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENDAN UPPLÝSINGABÆKLING.


ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA EINSTAKA “LOFT” ÍBÚÐ Í MIÐBÆNUM, AUKIN LOFTHÆÐ, EINSTAKUR STÍLL .SJÓN ER SÖGU RÍKARI!


Falleg 3ja herbergja 72,1 fm íbúð á 2. hæð í mjög fallegu eldra húsi við Grettisgötu 2 í Reykjavík.


Íbúðin er mjög opin og björt með upprunalegum gólfborðum, og lofthæð um 2,70 M.


Stofan er rúmgóð með upprunalegum gólfborðum og gengið út á svalir sem snúa inn í garð.


Tvöföld hurð er inn í rúmgott herbergi sem einnig er hægt að nýta sem aðra stofu.


Svefnherbergi er með opnu fatahengi og skúffum og herbergið er í dag bara stúkað af með léttum gardínum, einfalt að loka rýminu.


Eldhús og borðstofa eru með upprunalegum gólffjölum, Sérstaklur múrsteinsveggur hefur verið gerður upp og fær að njóta sín í miðju íbúðarinnar.


Baðherbergi er rúmgott með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.


Að sögn seljenda hefur húsið fengið gott viðhald á liðnum árum:


Bárujárnsklæðning hússins er nýleg.


Þak var málað 2019.


Gluggar sem snúa að götu eru nýlegir og baðherbergisgluggi 2023,


Allir pottofnar yfirfarnir 2021.


Rafmagn í eldhúsi nýtt og rafmagnstafla yfirfarin 2022.


Múrveggir inni í íbúðinni lagaðir, hreinsaðir og lakkaðir 2021.


*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***


Fylgdu Húsaskjóli á TikTok


Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði


img
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsaskjól fasteignasala
Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
img

Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. okt. 2019
40.400.000 kr.
42.800.000 kr.
72.1 m²
593.620 kr.
3. des. 2012
19.050.000 kr.
23.900.000 kr.
72.1 m²
331.484 kr.
11. ágú. 2006
13.080.000 kr.
21.300.000 kr.
72.1 m²
295.423 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur

Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur