Lýsing
Eignin er skráð 69,7 fm og þar af sér geymsla í sameign 4,2 fm. Sameiginlegur skjólgóður og snyrtilegur garður er við húsið.
Lýsing eignar:
Eldhús/borðstofa parketlögð. Falleg innrétting með eyju og góðu skápaplássi. Burstað stál er á borðum og tengi fyrir uppþvottavél. Úr eldhúsi er útgengt á stórar skjólsælar og sólríkar svalir til suðurs með harðviðargólfi.
Stofan er parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir og útsýni að Hallgrímskirkju.
Baðherbergi með glugga, flísalagt í hólf og gólf. Baðinnrétting, handklæðaofn, vegghengt salerni og rúmgóður flísalagður sturtuklefi með öryggisgleri.
Svefnherbergisgangur er parketlagður og með fataskápum innst á gangi.
Hjónaherbergið rúmgott og bjart með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi með parketi á gólfum og glugga til suðurs. (Ekki mynd í auglýsingu)
Sameign. Í kjallara er sér geymsla með glugga og sameiginlegt snyrtilegt þvottahús með glugga og sér tenglum fyrir hverja íbúð. Sameiginleg lítil geymsla í sameign.
Viðhald og endurbætur:
· Nýlegar suðursvalir.
· Stigagangur uppgerður fyrir nokkrum árum, flísalagður og teppalagður með sérsmíðuðum messing listum á þrepum.
· Nýleg rafmagnstafla.
· Nýlegar vatnslagnir og inntak.
· 2016: Húseignin var máluð að utan og húsið sprunguviðgert og lagað
· 2017: Gluggar málaðir.
· 2018: Skipt um frárennslislagnir í húsinu og einnig í götunni.
· 2020: Drenað kringum húsið og garðurinn endurnýjaður (hellulagður stígur, gras, bekkur og falleg lýsing).
· 2021: þak yfirfarið og sett nýtt þakjárn.
· 2023: Skipt um glugga í kjallara.
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.