Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Hringbraut 47

101 Reykjavík

59.900.000 kr.

830.791 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2027300

Fasteignamat

55.750.000 kr.

Brunabótamat

33.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1942
svg
72,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

LIND fasteignasala kynnir fallega og snyrtilega 2-3 herbergja íbúð á 1.hæð við Hringbraut 47 í 101 Reykjavík með útgengi út á svalir til vesturs. Eigninni fylgir herbergi í risi með aðgengi að salerni. Samkvæmt FMR er íbúð á hæð 61,5 m2 , íbúðarherbergi í risi 4,9 m2 ásamt 5,7 m2 geymlu. Samtals 72,1 m2. 

Bílastæði eru á bak við húsið og er ekið inn á bílastæði frá Furumel. Inngangur í kjallara er frá bílastæði og eru bjöllur þar einnig.  Inngangur er bæði Furumelsmegin og Hringbrautarmegin. Stigagangur er dúklagður með slitsterkum linoleum dúk. Garður er sameiginlegur. 

Góð staðsetning skammt frá Háskóla íslands og Þjóðarbókhlöðunni. Miðbær Reykjavíkur er í þægilegu göngufæri. Sutt er út á Ægisíðu, sundlaug vesturbæjar og út á Granda svo eitthvað sé nefnt. 



Nánari lýsing.
Forstofa með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp ásamt hvítum skóskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu. Stór hvítur handklæðaskápur. Gler vaskur og opnanlegur gluggi.
Eldhúsið er með innréttingu með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. , flísalagt gólf.  Nýlegt  Siemens span helluborð og bakaraofn. Nýleg blöndunartæki.
Svefnherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum hvítum fataskáp.
Stofan er rúmgóð með gluggum á tvo vegu og útgengi út á svalir til vesturs.
Herbergi  í risi með dúk á gólfi og opnanlegum glugga.

Húseignin var endursteinuð 1997.
Skolplögn var endurnýjuð 2010.
Raflagnir endurnýjaðar í íbúð.
Þak yfirfarið nýlega
2023 Nýir gluggar í allri blokkinni ásamt hurðum.


Sér geymsla  er í sameign með máluðu gólfi og hillum. Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sínar vélar. Sameiginleg hjólageymsla. Í risi er sameiginleg salernisaðstaða. Húsgjöld eignarinnar á mánuði eru 22.086 kr. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone