Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1993
51,2 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Björt, vel skipulögð og rúmgóð tveggja herbergja íbúð í íbúðakjarna fyrir eldri borgara við Lindargötu 57-66, 101 Reykjavík. Íbúðin er ætluð þeim sem eru 67 ára og eldri. Góð aðkoma er frá Lindargötu. Sjá nánari upplýsingar á þessum hlekk inni á vef Reykjavíkurborgar: Lindargata 57-66
Nánari lýsing:
Komið er inn frá sameign inn forstofugang með fataskáp. Stofan er björt og opin inn í eldhúsið, útgengi frá stofu út á suður svalir. Eldhús með hvítri innréttingu, vifta yfir eldavél. Rúmgott svefnherbergi og gott skápapláss. Baðherbergi með eldri innréttingu, dúkur á gólfi. Sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér geymsla íbúðar er í sameign. Snyrtilegur sameiginlegur garður. Húsvörður er starfandi í húsinu. Næg bílastæði eru í bílastæðahúsi, ekið inn frá frá Skúlagötu. Hægt er að sækja um langtímastæði í bílahúsinu. Innangengt er fyrir íbúa hússins úr bílastæðahúsi borgarinnar við Vitatorg.
Í húsinu er starfrækt félags- og tómstundastarf og hægt er að kaupa hádegismat alla daga og kaffiveitingar virka daga. Sólarhringsvakt er gegnum neyðarkallkerfi sem staðsett er í íbúðum og tengt er stjórnstöð þjónustumiðstöðvarinnar. Heimaþjónusta er veitt samkvæmt einstaklingsbundnu mati. Göngufæri er í verslanir, veitingastaði, leikhús o.fl. ásamt því að stutt er í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. okt. 2017
27.500.000 kr.
34.000.000 kr.
51.2 m²
664.063 kr.
30. sep. 2016
23.900.000 kr.
29.900.000 kr.
51.2 m²
583.984 kr.
1. mar. 2011
16.000.000 kr.
18.600.000 kr.
51.2 m²
363.281 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024