Lýsing
Miklaborg kynnir afar fallega og bjarta 47,1 fm studio íbúð á 1. hæð á þessum vinsæla stað við Lindargötu 28, 101 Reykjavík. Húsið er nýlegt, sér inngangur og 19 fm sérafnotareitur í lokuðum inngarði. Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu þar sem útgengt er út á sólríkan sólpall. Frábær staðsetning þar sem mannlíf og menning miðborgarinnar er handan við hornið. Stutt er í verslanir, kaffihús og veitingastaða auk fjölda markverðra staða. Um er að ræða nýlegt hús, byggt árið 2016. Húsið er á fjórum hæðum auk kjallara.
Vandaðar innréttingar frá GKS eru í allri íbúðinni ásamt flottu tækjavali.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@miklaborg.is
Sérinngangur /Forstofa er með flísum á gólfi og forstofuskáp.
Eldhús opið við stofu/borðstofu. Falleg ljós innrétting með keramik helluborði og viftu í innréttingu. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Innréttingin er frá GKS með strúktúr viðaráferð og borðplatan er plastklædd.
Stofa/borðstofa harðparket á gólfi, opin og björt með útgengi út á sérafnotareit og sameiginlegan lokaðan garð.
Svefnrými harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, handklæðaofn, upphengt salerni, ljós innréttting og sturta. Innréttingin er frá GKS með strúktúr viðaráferð og borðplata plastklædd með handlaug ofan á borðplötu.
Sér afnotareitur 19 fm sem snýr út í sameiginlegan garð.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara.
Sér geymsla í kjallara 6,4fm.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Virkilega falleg eign sem býður uppá mikla möguleika. Húsgögn íbúðar geta fylgt með í kaupum.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@miklaborg.is