Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
raðhús

Rjúpufell 28

111 Reykjavík

93.900.000 kr.

602.309 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2052721

Fasteignamat

85.950.000 kr.

Brunabótamat

72.760.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
155,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Bjart og vel skipulagt raðhús á einni hæð með bílskúr. Eigin skiptist í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, rúmgott hol og stofu/borðstofu og útgengt er í fallegan garð með gróðurhúsi. Fyrir framan hús er hellulögð verönd. Góð staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu og afþreyingu.

Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 155,9fm og þar af er bílskúr 23,1fm.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi. 
Baðherbergi I er innaf forstofu með innangengri sturtu, upphengdu salerni,handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og innrétting með skolvask og góðu geymsluplássi. Flísalegt í hólf og gólf.
Hol rúmgott og tengir allar vistaverur saman með parekti á gólfi. 
Stofa/borðstofa björt og rúmgoð með parketi á gólfi. Útgengi í sólríkan garð.   
Eldhús með snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi, helluborði og gufugleypi, góður eldhúskrókur og parket á gólfi. Innan af eldhúsi er búr með góðu hilluplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi II með innangengri sturtu, baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofn og snyrtilegri innréttingu. 
Hjónaherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi I rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi III rúmgott með parketi á gólfi. 
Bílskúr er í bílskúrslengju fyrir framan húsið með 3ja fasa rafmagni. 
Sérgeymsla er í í kjallara hússins. 

Allar nánari upplýsingar veitir Dana Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-1879 eða á netfenginu dana@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík