Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Stefán Bjarki Ólafsson
Vista
raðhús

Vesturberg 90

111 Reykjavík

98.900.000 kr.

620.063 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2050500

Fasteignamat

83.250.000 kr.

Brunabótamat

73.730.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
159,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Domusnova og Ingunn Björg  kynna einstaklega fallegt og mikið endurnýjað 5 herbergja raðhús við Vesturberg 90. Húsið er á einni hæð með bílskúr.  Falleg afgirt verönd með heitum potti er fyrir aftan hús sem snýr í austur, suður og vestur. Mynstursteypt hellulögð stétt er fyrir framan hús með fallegri kvöldlýsingu.
Húsið skiptist í  forstofu, hol, rúmgott eldhús, stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, og þvottahús með geymslu inn af. Eigninni fylgir mjög rúmgóður bílskúr með rafhleðslustöð. Aukin lofthæð er í sjónvarpsholi, stofu og eldhúsi. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 159,9  m2, þar af er 31,4  m2 bílskúr.

Hér er um að ræða einstaklega spennandi eign fyrir barnafjölskyldu í þessu vinsæla hverfi í Breiðholti.


Nánari upplýsingar veita:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Mikið endurnýjuð eign !

Að sögn seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum.
  • Nýleg eldhúsinnrétting ásamt tækjum. 
  • Baðherbergi nýlega endurnýjað, gólfefni,fibo trespo plötur á veggjum, innrétting ásamt hreinlætistækjum.
  • Nýleg gólfefni á öllum herbergjum, eldhúsi og alrými.
  • Nýlegir rofar og tenglar. Rafmagn endurnýjað að hluta. 
  • Nýlegt gler í öllum gluggum ásamt gluggalistum.Skipt var um glugga og gler í stofu ásamt þakglugga í holi. 
  • Þak yfirfarið og málað 2021.  
  • Nýleg bílskúrshurð.

Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur. 
Hol: Rúmgott hol með arni, fjórfaldur fataskápur. Harðparket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Falleg og björt, útgengt út á verönd. Harðparket á gólfi.
Eldhús:  Er í opnu rými með stofu og borðsstofu. Nýleg falleg og mjög rúmgóð innrétting með eyju. Quarts borðplötur. Innbyggð uppþvottavél í vinnuhæð, tveir bakarofnar í vinnuhæð, helluborð í eyju. Háskápar með tækjaskáp, ísskáp í fullri hæð og frystiskáp í fullri hæð. Innfelld lýsing í lofti. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og fallegt, fataskápur. Harðparket á gólfi. 
Barnaherbergi 1: Rúmgott, harðparket á gólfi. ( Ath! Infrarauður klefi sem staðsettur er í herbergi fylgir ekki með ) 
Barnaherbergi 2: Harðparket á gólfi. Nýtt sem skrifstofa í dag. 
Baðherbergi: Nýlega uppgert. Fín innrétting með vaski ofan á borðplötu,háskápur, walk inn sturta, handklæðaofn, upphegnt salerni. Flísar á gólfi. Fibo trespo plötur á hluta veggja.  
Þvottahús: 
Fín innrétting með hólfum fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt út á pall. Flísalagt gólf. 
Geymsla: Rúmgóð geymsla inn af þvottahúsi. 
Verönd: Glæsileg ca 66 fm verönd með heitum potti sem var stækkuð árið 2022. Rúmgott útieldhús með stæði fyrir grill. Veröndin snýr í hásuður en einnig til austurs og vesturs. 
Bílskúr: Mjög rúmgóður 31,4 m2. Nýleg bílskúrshurð með rafdrifinni hurð. Gluggar á endahlið, einn af þeim með opnanlegu fagi. Vaskur. 

Innbyggt ryksugukerfi er í húsinu. Einnig er svokallaður sóplisti við sökkul innréttingar í eldhúsi. Eitt tengi er í holi. Ryksugubarkinn nær um allt hús. 

Ath. Húsið er ekki skv. upprunalegri teikningu. 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    10. júl. 2019
    51.300.000 kr.
    52.700.000 kr.
    159.5 m²
    330.408 kr.
    4. jan. 2007
    27.880.000 kr.
    31.000.000 kr.
    159.5 m²
    194.357 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Ingunn Björg Sigurjónsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur