Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Stefán Bjarki Ólafsson
Vista
svg

33

svg

28  Skoðendur

svg

Skráð  17. júl. 2024

fjölbýlishús

Jöfursbás 5C - íb 301

112 Reykjavík

90.400.000 kr.

926.230 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530381

Fasteignamat

6.540.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
97,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

***DOMUSNOVA KYNNIR * NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ***NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU***
* SJÁVARSÝN ÓHINDRAÐ ÚTSÝNI 
* AUKIN LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐUM
* SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR SEM NÁ TIL LOFTS
* VANDAÐ PARKET Á GÓLFUM
* HITI Í ÖLLUM GÓLFUM
* GÓLFSÍÐIR GLUGGAR
* QUARTZ STEINN Á BORÐPLÖTUM OG UNDIRLÍMDIR VASKAR
* SNJÓBRÆÐSLUKERFI Í GÖNGUSTÍGUM MEÐ FALLEGRI NÆTURLÝSINGU
* SPENNANDI UMHVERFISSKIPULAG Í NÝJU HVERFI
Jöfursbás 5C, Reykjavík - íbúð 0301.  3ja
 herbergja endaíbúð íbúð 97,6fm. á þriðju hæð með óheftu útsýni til sjávar, þar af geymsla 5,1fm. (merkt 0012).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B018 í lokuðu bílahúsi.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með stofu, borðstofu og tveimur svefnherbergjum.  Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar.
Stórar svalir til austurs út frá stofu með óheftu tsýni til sjávar þar sem íbúðin er staðsett við strandlengjuna.
Íbúðin er með aukinni lofthæð allt að 280cm.

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

ALLIR KAUPENDUR OG SELJENDUR OKKAR FÁ GULLKORT DOMUSNOVA.  Handhafar gullkortsins fá allt að 35% afslátt hjá 12 samstarfsaðilum okkar:  S. Helgason,  Sérefni, Birgisson,  Módern,  Lín design, Tengi,  Nespresso,  Öryggismiðstöðin,  Ísorka,  Lýsing og hönnun, Sólar gluggatjöld og Bm Vallá. 

Lýsing íbúðar:
Forstofa 
með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum
og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi.  Vönduð innbyggð tæki í innréttingu.
Stofa og borðstofa með góðum gluggum og útgeng á stórar útsýnissvalir til sjávar.  
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  
Hjónaherbergi með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.  Gólfsíður gluggi með útsýni til sjávar.
Barnaherbergi með góðum fataskáp sem nær til lofts
Þvottaherbergi innan íbúðar flísalagt 60x60 flísum frá EBSON og innrétting undir tæki
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
Stæði í upphituðu lokuðu bílahúsi í kjallara og innangengt þaðan inn í stigahús.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 25 talsins, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 60,0 fm-137,2 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891-8660 eða vilborg@domusnov.is
Kristín Einars. lgfs., s: 894-3003 eða kristin@domusnova.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða oc@domusnova.is
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða adalsteinn@domusnova.is
Margrét Rós Einarsdóttir lgfs., s. 856-5858 eða margret@domusnova.is
Sölvi Þór Sævarsson lgfs., s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Hrannar jónsson lgfs., s. 899-0720 eða hrannar@domusnova.is

NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: 
Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, allt að 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar ljósar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span helluborð og vandaður veggofn frá AEG.  
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi og svörtu frá Grohe Essence. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í september 2024.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone