Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
sumarhús

Kerhraun 84c

805 Selfoss

17.900.000 kr.

1.193.333 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2344452

Fasteignamat

3.180.000 kr.

Brunabótamat

3.940.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
15 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu: Kerhraun 84, 805 Selfoss, fallegt 5.057 fm eignarland í lokuðu sumarbústaðahverfi í Grímsnes- og Grafningshreppi norðan við Kerið úr landi Seyðishóla sem áður tilheyrði jörðinni Klausturhólar. Kerhraun er í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsaming. Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.

Á landinu er nýlegt 15 fm einangrað sumarhús sem skráð er sem geymsla. En lokaúttekt hefur verið gerð á því. Við húsið er 2.800 lítra rotþró. Húsið er með baðherbergi með sturtu, wc og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er aðskilið frá öðru rými með rennihurð þar sem er lítil eldhúsaðstaða með ofni, helluborði og uppþvottavél sem fylgir, og svefnaðstöðu.  Auk sumarhússins er 17 fm yfirbyggt rými á pallinum en  farið er um hurð á húsinu yfir í það. Hliðar rýmisins eru einangraðar. Stór timburverönd með girðingu er við húsið. Heitt og kalt vatn og rafmagn er í húsinu. Heitur pottur er við húsið. Einnig um 9 fm gróðurhús sem sett var upp á árinu 2023.  Búið er að gróðursetja töluverðan fjölda trjáa í landinu. Svæðið er lokað með símahliði. Lokað hitakerfi var sett upp 2024.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Kerhrauni. Húsið selst í því ástandi sem það er og áhugasömum bent á að kynna sér húsið vel og einnig er bent á að ekki er búið að fullnýta byggingaréttinn á landinu. Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. mar. 2024
3.180.000 kr.
14.000.000 kr.
15 m²
933.333 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.