Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
svg

327

svg

314  Skoðendur

svg

Skráð  31. júl. 2024

fjölbýlishús

Grensásvegur 1A - 0608

108 Reykjavík

75.400.000 kr.

958.069 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522214

Fasteignamat

28.400.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
78,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar nýjar íbúðir við Grensásveg 1-A, margar íbúðinna eru með glæsilegu útsýni.  Fullbúin sýningaríbúð sem hægt er að skoða.  
Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þetta glæsilega fjölbýli. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs.

 
Nánari lýsing íbúðar 0608
Stórglæsileg og vel skipulögð 2ja herbergja 78,8 fm á 6. hæð með gólfsíðum gluggum og hita í gólfum.
Komið er inn í forstofu með fataskáp. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa. Rúmgott bjart eldhús með eyju og stofa með útgengi á svalir í austur. Innaf eldhúsi er flísalagt þvottahús/búr með innréttingu. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf.  Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0074.
 
Frekari upplýsingar veita:
Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703
Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is, 617-5161

 
Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Stutt lýsing Grensásvegs 1 A/F.
Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Parka.
Allt parket á gólfum er vandað harðparket.
Innfelld LED lýsing í loftum.
Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf.
Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe.
Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Innbyggð blöndunartæki í sturtu.
Gólfhiti er í öllum  íbúðum.
Svalahandrið úr gleri.  Afhending á íbúðum í F-húsi verður í lok árs 2024, A-húsið verður afhent í byrjun árs 2025.

Bílakjallari/bílastæði.
Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara verða hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Deilibílar.
Deilibílar verða hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og atvinnustarfsemi á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur verða forskráðir.

Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is  Heimasíðu verkefnisins má finna hér.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Finnbogi Hilmarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík