Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
sumarhús

Efsti-Dalur Lóð 2b

806 Selfoss

51.500.000 kr.

557.359 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2248058

Fasteignamat

31.300.000 kr.

Brunabótamat

34.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2000
svg
92,4 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Virkilega fallegt og vel staðsett sumarhús ásamt gesthúsi í landi Efsta Dals í Bláskógarbyggð, stutt frá Laugarvatni.

Árni Björn Erlingsson lgf og Fasteignaland kynna eignina, Efsti-Dalur Lóð 2b, 806 Selfoss, 

Eignin Efsti-Dalur Lóð 2b, birt stærð samkv. HMS er 67.4 fm. en við það bætist Gesthús um 15 fm og geymsla um 10 fm. 

Lýsing eignar:
Forstofa: parket á gólfi, gott skápapláss.
Stofa: rúmgóð og björt stofa með aukinni lofthæð, parket á gólfi, stórir gluggar. Eldhús og stofa flæða saman og mynda fallega heild og útgengt er út á sólpall frá stofu.
Eldhús: parket á gólfi, hvít snyrtileg innrétting.
Svefnherbergi 1:  rúmgott herbergi með parketi á gólfum.
Svefnherbergi 2: rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: parket á gólfi, upphengt salerni, sturtuklefi, lítil hvít innrétting undir vaski.
Sólpallur: er allan hringinn í kring um húsið, heitur pottur og fallega skjólgóð og gróin lóð.
Gesthús: um 15 fm. með parket á gólfi og snyrtileg salernisaðstaða.
Geymsluskúr: um 10 fm með flísum á gólfi.

Húsið er tengt við hitaveitu staðarins.
Húsið stendur á 5.900 fm fallegri gróinni leigulóð, ársleigan er um kr. 120.000,-

Í heildina er þetta 92,4 fm. Bústaðurinn er 67,4 fm, gestahús um 15 fm og geymsla um 10 fm.

Þetta er eign sem vert er að skoða, miklir útleigumöguleikar og frábær staðsetning.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Árni Björn Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.