Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1961
200,5 m²
8 herb.
2 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Aukaíbúð
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Fallegt einbýlishús við Borgarholtsbraut 16 í Kópavogi beint norðanmegin við sundlaugina góðu. Um er að ræða 200 fm hús með bílskúr á 1000 fm lóð. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað síðustu ár. Mikið og fallegt útsýni er frá efri hæð hússins. Einstaklega falleg og gróin lóð. Tvær íbúðir eru í húsinu. Sex svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær stofur, tvö eldhús, bílskúr og geymslur. Verandir eru í kringum húsið. Stórt bílaplan. Efri hæð er að hluta undir súð og gólfflötur því stærri en uppgefnir fm segja til um.Nánari lýsing íbúða:
Íbúð á neðri hæð skiptist í forstofu, (sameiginleg með efri hæð), stóra stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gang og þvottarými inn af eldhúsi.
Íbúð á efri hæð skiptist í forstofu, (á neðri hæð), stofu, eldhús, gang, baðherbergi með þvottarými innaf og þrjú svefnherbergi. Yfir hjónaherbergi er svo milliloft/geymsla.
Endurnýjun síðustu ára:
Á síðustu árum hafa gluggar og gler verið endurnýjuð að mestu.
2013. Hús einangrað og klætt að utan. Báruál – Áltak.
2013. Skipt um klóaklagnir á neðri hæð og innanhúsdren lagt.
2013. Dren á norður og austurhlið.
2014. Ný gólfplata steypt á neðri hæð og skipt um undirlag. Gólf einangrað og flotað.
2014. Hitalagnir endurnýjaðar á neðri hæð og gólfhiti lagður.
2014. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
2014. Rafmagn endurnýjað á neðri hæð.
2015. Klóaklagnir endurnýjaðar frá efri hæð.
2015. Baðherbergi endurnýjað á neðri hæð. Tæki úr tengi, innrétting frá IKEA.
2016. Ný eldhúsinnrétting frá IKEA á neðri hæð.
2016. Nýir fataskápar í hjónaherbergi og einu auka herbergi.
2021. Þak á húsi og bílskúr einangrað og klætt með báruáli – Áltak.
Nánari upplýsingar veitir hilmar@eignamidlun.is Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2012
41.050.000 kr.
40.000.000 kr.
200.5 m²
199.501 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024