Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þröstur Ástþórsson
Sigurdur Sigurbjornsson
Vista
svg

419

svg

382  Skoðendur

svg

Skráð  19. feb. 2025

raðhús

Huldudalur 5

260 Reykjanesbær

119.900.000 kr.

698.311 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519530

Fasteignamat

24.250.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
171,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

M2 fasteignasala kynnir í einkasölu -  Glæsilegt fullkárað raðhús ásamt bílskúr við Huldudal 5 í Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ.

Húsin eru 171,7fm samtals að stærð. Íbúð er 143,3fm og bílskúr 28,4fm.
Húsin skiptast í forstofu, gestasalerni, þvottahús, eldhús, borðstofa, stofa, baðherbergi, tvö barnaherbergi,
hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaðherbergi, geymsla og bílskúr.

3D myndband af Huldudal 5,7 og 9

Fullbúin skilalýsing í pdf fylgir söluyfirliti

Afhendingartími
Eignirnar skilast á byggingarstigi 7 . Fullbúin að utan og fullbúið að innan.
Áætlaður afhendingartími er 16.júní 2025
Byggingaraðili er Blikksmiðja Suðurnesja ehf.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is

Húsin skilast á byggingarstigi 7, fullkláruð bygging,Skilalýsing:


Lóð og teikningar
Í suðurgarði íbúðanna verður lóð tyrfð ásamt vélslípaðri stétt með lögnum fyrir heitan/kaldan pott.
Skjólveggur á milli lóða verður einnig tilbúinn. Skýli fyrir þrjár flokkunartunnur verða við innkeyrslu hverrar
íbúðar. Botnlangi frá götu að húsum verður malbikaður. Af botnlanga er ekið inn á steyptar og vélslípaðar
innkeyrslur að íbúðum með hitalögn tilbúinni til tengingar.

Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og
hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.

Sökklar og botnplata
Sökklar eru um 600 mm háir. Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli og K10 kambstál í
tengijárnum við plötu. Sökkulveggir eru eingraðir beggja vegna með 16kg/m 3 75mm plasteinangrun.
Steypa er af gerðinni S-250.
Einangrun undir plötu er 24kg/m 3 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind. Steypa
er af gerðinni S-250.

Lagnir
Fráveitu- og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi. Neysluvatnslagnir verða að fullu tengdar, rör í rör í
gólfplötu og gólfhitalagnir verða frágengnar og tengdar við gólfhita(kistu) í fullri virkni.
Einnig eru ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð innifalin. Hverri eign verður skilað með
loftræstikerfi með varmaendurvinnslu, með innlæstri í öll svefnrými og miðrými eignar og afsogi af
salernum, þvottahúsi og eldhúsi.

Raflagnir
Inntakstafla fyrir rafmagn verður fullfrágengin og allar raflagnir frágengnar í loftum og veggjum.
Ídráttarrör fyrir bílhleðslutæki frá rafmagnstöflu að útvegg verður lagt.

Útveggir
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri 45x145mm og klæddir með 12mm krossvið að utan til stífingar. Að innan eru allir veggir einangraðir og klæddir með Intello Plus rakavarnardúk frá Proclima, OSB plötum og gipsi. Veggir verða allir yfirborðsmeðhöndlaðir og fullfrágengnir (spartlaðir, grunnaðir og full málaðir). OSB plötur tryggja góða festu fyrir þá hluti sem festa á við veggi auk þess að stífa húsið betur.

Klæðning
Útveggir eru klæddir að utan með stuðlaðri álklæðningu í sama lit og þakkantur (RAL7021). Sjá
myndband.

Þak
Þak er með tvöföldum ásoðnum þakdúk. Þakkantur er klæddur með álklæðningu í lit RAL7021.

Gluggar og hurðir
Gluggar og hurði eru úr ál/timbri í svörtum lit að utan en frágangur í kringum glugga og hurðir er úr áli í sama lit og utanhússklæðningin.

Opinber gjöld
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald, og
stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd.
Skipulagsgjald er greitt af seljanda.

Frágangur innanhúss:
Innveggir
Allir milliveggir verða einangraðir, klæddir með OBS plötum, gipsi, spartlaðir, grunnaðir og full málaðir.

Loft
Loft salerna og þvottahúss verða gipsklædd og fullmáluð og frágangur og efnisval eins og votrýmum sæmir. Loft alrýmis verður gipsklædd á afrétta blikkgrind, spörtluð, máluð og fullfrágengin. Vandað verður til við hönnun og útfærslu lýsingar.

Innihurðir
Svartar innihurðir með einföldum lömum.

Gólfefni
Ljósgrátt parket frá Quikstep  er á öllum herbergjum og alrými.
Í forstofu eru ljósgráar 60x60 flísar og einnig á salernum og þvottahúsi.
Bílskúr skilast með flotuðu steingólfi.

Fataskápar
Fataskápar í stíl við aðrar innréttingar og hurðir. Vandað er til innri búnaðar.

Eldhús
Eldhús skilast fullbúið með glæsilegum svörtum innréttingum frá Rehau.
·         Helluborð 86 cm frá Bora með viftu í miðjunni.
·         Ískápur með frystir (BOSCH KIN 86VFEO)
·         Innbyggður örbylgjuofn (BOSCH BEL 554MBO) og bakaraofn (BOSCH HRA 57BBO)
·         Steinplata er á borðum og eyju.
·         Uppþvottavél (BOSCH SMV 4HVXO3E)

Baðherbergi
Stór baðherbergi skilast með svartri Rehau innréttingu með steinplötu. GROHE blöndunartæki.
·         Glæsileg sturta með gleri og hurð í möttum svörtum ramma. Innbyggð blöndunartæki í sturtu.
·         Salerni með innbyggðum vatnskassa með glerfronti.

Þvottahús
Þvottahús skilast með svartri Rehau innréttingu.
·         Vaskur og blöndunatæki í steinborðplötu.
·         Þvottavél (BOSCH WGG 242ZG) og þurkari (Bosch WQG 2410G)

Loftræstikerfi
Íbúðin skilast með fullbúnu loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
·         Innblástur í öllum svefnrýmum og miðrými eignar.
·         Útsog af salernum, þvottahúsi og eldhúsi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. feb. 2025
24.250.000 kr.
200.000.000 kr.
10101 m²
19.800 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone