Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
115,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg 115,2 m2, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi við Elliðabraut 20 í Norðlingarholti. Eignin er skráð 115,2 m2, þar af íbúð 106,2 m2 og geymsla 9,0 m2.  Eignin skiptist skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu/borðstofu. Sérgeymsla í sameign. Stór timburverönd í suður- og austurátt. Gott skipulag og gólfsíðir gluggar. Vandaðar innréttingar frá AXIS og sér loftskiptakerfi er í íbúðinni. Frábær staðsetning í vinsælu hverfi stutt frá útivistarperlu, leikskóla, grunnskóla og allri helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa
er rúmgóð með fatahengi og innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús er með sérsmíðuðum innréttingum frá AXIS og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa/Borðstofa er opnu og björtu rými með stórum gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er útgeng á mjög rúmgóða timburverönd (um 40 m2) í suður- og austurátt.
Svefnherbergi nr.1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi nr.2 er með parketi á gólfi og innbyggðm fataskáp. 
Svefnherbergi nr.3 er með parketi á gólfi og fataksáp.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Á baði er 'walk in' sturta, vegghengt salerni, handklæðaofn og innrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi með innréttingu og flísum á gólfi. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign. Skráð 9,0 m2. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla

Verð kr. 89.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. ágú. 2023
64.500.000 kr.
78.900.000 kr.
115.2 m²
684.896 kr.
10. mar. 2021
22.900.000 kr.
59.400.000 kr.
115.2 m²
515.625 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ