Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Karólína Íris Jónsdóttir
Vista
svg

10

svg

8  Skoðendur

svg

Skráð  28. okt. 2024

fjölbýlishús

Valshlíð 3

102 Reykjavík

78.900.000 kr.

1.038.158 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532604

Fasteignamat

7.810.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
76 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kynnum til sölu nýjar og einstaklega vandaðar íbúðir í Hlíðarhorni. Um er að ræða 33 íbúðir við Valshlíð 3 í Reykjavík á suðvesturhorni byggingarreits. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar í janúar 2025.

Íbúð 209 er 76,5 fm þar af 5,7 fm geymsla. Um er að ræða hagkvæma og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með svölum, svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um innri garð. Byggingin er miðsvæðis í Reykjavík í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Stutt er því í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu, iðandi mannlíf og stóra vinnustaði.

Í Hlíðarhorni eru 195 íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Allar íbúðir eru með svölum, þaksvölum eða sérafnotareitum á jarðhæð og hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Allt húsið er klætt að utan með álklæðningum með gluggum úr ál/tré og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar

Allar innréttingar íbúða eru vandaðar frá Nobilia/GKS og eldhústæki eru af tegundunum Siemens og Witt. Íbúðir skilast með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og blástursofni, blöndunartækjum frá ítalska framleiðandanum Mariner, Berry Alloc vinylparketi og flísum frá Álfaborg. Innréttingarþema hverrar íbúðar er fyrirfram ákveðið. Íbúðir eru allar full-loftræstar.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Nánari lýsing íbúðar skv teikningu:

Anddyri: Rúmgóðir fataskápur. Anddyri opnast beint í alrými.

Eldhús: Hvít innrétting og eyja frá Nobilia og hvítur quartz-steinn á borðum. Bjart og stílhreint í vel skipulögðu alrými.

Stofa/borðstofa: Glæsilegt alrými með útgengi á svalir.

Svefnherbergi: Stórt hjónaherbergi með rúmgóðu fataherbergi.

Baðherbergi: Með hvítri innréttingu og speglaskáp, “walk-in” sturtu með gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum skv þemalýsingu.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.

Hönnunarþema íbúðar 209 : Mjöll 1

Athygli kaupanda eru vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

img
Karólína Íris Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hlíðarhorn
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Hlíðarhorn

Hlíðarhorn

Borgartún 29, 105 Reykjavík
img

Karólína Íris Jónsdóttir

Borgartún 29, 105 Reykjavík
Hlíðarhorn

Hlíðarhorn

Borgartún 29, 105 Reykjavík

Karólína Íris Jónsdóttir

Borgartún 29, 105 Reykjavík