Lýsing
Eignin er skráð 100,1 fm samkvæmt fasteignayfirliti HSM en þar af er geymsla á sömu hæð 4,3 fm.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit en annar eru allar frekari upplýsingar veittar í síma 663 2300 eða thorey@landmark.is.
Nánari lýsing
Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, bjart og rúmgott með með eldhúsi, útgengt á 17 fm suðvestur svalir, parket á gólfi.
Eldhús með málaðri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parekt á gólfi.
Barnaherbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II, parket á gólfi.
Baðherbergi nýlega endurbætt, flísalagt með upphengdu salerni, innréttingu og sturtu. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
Eigninni fylgir sérgeymsla á hæðinni og hjóla- og vagnageymsla við inngang í stigahúsið
Sameiginlegt þvottahús í sameign (á efstu hæð).
Greitt er í eitt húsfélag og eru húsgjöld í húsfélagið Fannborg 1-9 kr. 26.646 á mánuði en þá er allur hiti innifalinn, rafmagn í sameign, þrif sameignar og sorpgeymslu sem og einnig framkvæmdasjóður.
Húsið var viðgert og málað að utan 2017/2018 og þá var skipt um gler og glugga í austur hlið. Góð bílastæði eru á svæðinu.
Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat