Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1985
225,2 m²
7 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Domusnova fasteignasala og Vera kynnir í sölu fallegt og vel skipulagt 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með skjólgóðri verönd sem snýr til suðvesturs ásamt rúmgóðum bílskúr innst í botnlanga við Funafold.
ATH. Verið var að ljúka við núna í okt. 2024 endurnýjun á þakjárni, pappa og timbri þar sem þurfti. Þakkantur endurnýjaður ásamt ísetningu nýrra Velux þakglugga á húsinu, nýlegar rennur og fl. Endurnýjun á þakjárni og pappa á bílskúr, nýlegur þakkantur.
Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 225,2 m2, þar af er 40 m2 bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum. Á neðri hæð er forstofa, eldhús, stofa, sólskáli, svefnherbergi, gestasalerni og þvottahús. Frístandandi bílskúr með góðu geymslulofti. Á efri hæð er rúmgott sjónvarpsrými, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hér er um að ræða spennandi eign fyrir fjölskyldur á þessum vinsæla stað í Grafarvoginum.
Fasteignamat næsta árs: 139.250.000
VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN Á vera@domusnova.is eða í síma 8661110 eða
ingunn@domusnova.is eða í síma 856 3566.
Nánari lýsing:
1. hæð:
Forstofa: Flísalagt gólf, fataskápur.
Eldhús: Mjög rúmgott og bjart eldhús með gluggum á tvo vegu og flísum á gólfi. Rúmgóð viðarinnrétting með hvítum hurðum, eyja með helluborði, háfur með útblæstri, ofn í vinnuhæð. Möguleiki á að opna á milli eldhúss og stofu. Útgegnt í sólskála.
Stofa: Rúmgóð og björt. Parketflísar á gólfi, gólfsíður franskur gluggi. Útgengt í sólskála.
Sólskáli: Rúmgóður, flísar á gólfi. Útgegnt á stóra suðvestur verönd og í ræktaðan garð.
Herbergi 1: Gluggar á tvo vegu. Fataskápur, parketflísar á gólfi. Mögulegt að fjarlægja vegg og stækka með því stofu.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi. Innrétting með skápum og vaski, upphengt salerni. Gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús, stór innrétting, gluggi með opnanlegu fagi, flísar á gólfi. Hurð út á lóð.
Verönd: Skjólsæl og sólrík, snýr til suðvesturs. ATH heitur pottur sem er laus ofaná pallinum fylgir ekki.
Innfelld lýsing og gólfhiti er á neðri hæð. Skriðkjallari er undir öllu húsinu.
Timburstigi liggur upp á efri hæð.
Efri hæð:
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með harðparketi á gólfi.
Herbergi 2: Harðparket á gólfi, rúmgóður fataskápur. Gengið út á suðursvalir sem nýlega hafa verið endurgerðar.
Herbergi 3: Harðparket á gólfi, fataskápur. Hurð út á suðursvalir.
Herbergi 4: Harðparket á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Herbergi 5: Harðparket á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Baðherbergi: Fín innrétting, sturtuklefi og baðkar, upphengt salerni, flísar á gólfi, gólfhiti.
Stórt óskráð geymsluloft er yfir annari hæð. Stórar nýlega uppgerðar suðursvalir aðgengilegar úr tveimur svefnherbergjum.
Bílskúr: Frístandandi bílskúr með hita, vatni og 3ja fasa rafmagni. Sjálfvirkur hurðaopnari. Stórt geymsluloft fyrir ofan bílskúr.
Um er að ræða afar rúmgóða og vel staðsetta eign með skjólgóðum sólpalli og stórum bílskúr á eftirsóttum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug. Einnig er stutt í fallegar hjóla- og gönguleiðir og ósnortna náttúru allt í kring. Þetta er eign sem vert er að skoða.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. apr. 2018
69.050.000 kr.
80.000.000 kr.
225.2 m²
355.240 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024