Lýsing
Miklaborg kynnir: Bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 4.hæð með 7.5 fm suðursvölum í glæsilegu lyftuhúsi frá 2014. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir. Frábær staðsetning í miðborginni, en svæðið í kring er að breytast í glæsilegt miðborgartorg með áherslu á gróður og dvalarsvæði. Örstutt í veitingastaði og þjónustu. Stór og björt stofa, mjög rúmgott svefnherbergi, stórt baðherbergi með þvottaaðstöðu og vinnukókur. Eignin er 80,8 fm þar af er geymsla í 8,9 fm . Hún er sérlega vel staðsett á 1.hæð nálægt innganginum. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Komið er opna forstofu með skápum. Á hægri hönd er eldhúsið með góðu borðplássi og innbyggðri uppþvottavél. Það rennur saman við stofuna sem er björt og rúmgóð með útgengi á 7,5 fm svalir til suðurs. Húsið er klætt að utan og er viðarklæðning við svalirnar sem gefur mjög hlýlegan blæ. Svefnherbergið er sérlega rúmgott, eða 16,6 fm, með góðum skápum og með gluggum í tvær áttir. Á móti svefnherbergi er stórt baðherbergi, eða 8,7 fm með sturtu, handklæðaofni og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara þannig að vélarnar eru í vinnuhæð. Á milli er rúmgóður vinnukrókur . Harðparket er á gólfum nema að baðherbergið er flísalagt. Sameignin er snyrtileg og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir. Sérstaklega skemmtileg og vel skipulögð íbúð á þessu skemmtilega og vaxandi svæði sem er að umbreytast í miðborgartorg skv.nýju deiliskipulagi.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is