Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

189

svg

155  Skoðendur

svg

Skráð  6. nóv. 2024

fjölbýlishús

Mánatún 1

105 Reykjavík

78.900.000 kr.

1.024.675 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2362479

Fasteignamat

70.350.000 kr.

Brunabótamat

53.540.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
77 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði

Lýsing

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs og Kristján Baldursson lgfs kynna Mánatún 1, virkilega fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt stæði í bílakjallara í nýlegri lyftublokk við Mánatún 1. Útgengi er frá stofu út á rúmgóðan pall til suð-vesturs.

Íbúðin sjálf er skráð 68.8 m2 og geymslan er 8,2 m2 hjá HMS, eða samtals 77,0 m2.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is


Nánari lýsing eignar:
Forstofan er með mjög rúmgóðum fjórföldum fataskáp. Harðaparket er á gólfi.
Í eldhúsi er góð innrétting frá Brúnás, ljúflokun á skúffum. Harðparket er á gólfi.
Á baðherbergi er góð innrétting frá Brúnás, flísar á gólfi og veggjum. Upphengt salerni og glerskilrúm við sturtu. Gólfhiti er á baðherbergi ásamt handklæðaofni.
Þvottahús er innaf baðherbergi og er mjög rúmgott með góðri innréttingu þar sem vélarnar eru í vinnhæð. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með skápum á heilum vegg sem ná alveg upp í loft. Harðparket á gólfi.
Stofa er með útgengi út á pall til suð-vesturs. Harðparket á gólfi.
Geymsla er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Húsið er eitt stigahús með 34 íbúðum. Tvær lyftur eru í húsinu og íbúðinni fylgir stæði í rúmgóðum bílakjallara. Húsið er hannað af Kanon arkitektum og Dverghamrar ehf. er byggingaraðili hússins.

Lóðin er smekklega frágengin og skemmtileg. Stutt er í útivistarsvæðið í Laugardalnum með öllum þeim íþróttamannvirkjum, göngu- og reiðhjólastígum sem þar er að finna að ógleymdum fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Stutt er í matvöruverslun í Borgartúni og frekari þjónustu, s.s. veitingastaði, kaffihús og fleira. Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jún. 2017
4.630.000 kr.
39.900.000 kr.
77 m²
518.182 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík