Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Engihjalli 19

200 Kópavogur

54.900.000 kr.

610.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2060106

Fasteignamat

50.500.000 kr.

Brunabótamat

43.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
90 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með tveim svölum í suður og austur á þriðju hæð í lyftuhúsi við Engihjalla 19, Kópavogi. Íbúðin er laus við kaupsamning. Þvottahús er við hlið íbúðar á sömu hæð. Sér geymsla í kjallara. Þetta er frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. 

Íbúðin er skráð 90,0 m2 hjá HMS en stærð geymslu er ekki skrá hjá HMS. 

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn á parketlagt anddyri og hol og er fataskápur á hægri hönd.
Baðherbergið er flísalagt og með baðkari með sturtuaðstöðu. Ljósblá innrétting og ágætis skápapláss. 
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á rúmgóðar svalir sem snúa í suður. 
Eldhús er með snyrtilegri eldri innréttingu og korkflísum á gólfi.
Herbergi I er með dúk á gólfi og góðum skápum. Útgengt er út á rúmgóðar svalir, sem snúa í austur, úr herberginu.
Herbergi II er með dúk á gólfi og skáp.
Sjónvarpshol er fyrir framan herbergin.
Þvottahús er á hæðinni sem þrjár íbúðir deila og er það við hlið íbúðarinnar. 
Sér geymsla er í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu
Næg bílastæði eru á stóðu bílastæði framan við húsið. 
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Þessi staðsetning er frábær og er stutt á stofnbrautir í kring. Sjón er sögu ríkari, allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson hdl og löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík