Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
sumarhús

Djáknavegur 23

806 Selfoss

55.000.000 kr.

610.433 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2275143

Fasteignamat

41.250.000 kr.

Brunabótamat

55.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
90,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Djáknavegur 23, 806 Selfoss.

Frábærlega staðsett 90,1 fm vel skipulagt heilsárshús á fallegum útsýnisstað í kjarri vöxnu landi Úthlíðar í Biskupstungum. Húsið stendur á 4110 fm leigulóð og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Hitaveita er á svæðinu. Mjög góð verönd/pallur með heitum potti. Gott aðgengi af bílastæði. Eignin er laus við kaupsamning. Sumarhúsahverfið er með öryggishliði. Í hverfinu er starfrækt félag sumarhúsaeigenda. Snjómokstur er á veturna sem veitir gott aðgengi árið um kring. 

Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninni

Eignin samanstendur af þremur svefnherbergjum, eldhúsi, baðherbergi með sturtu og útgengi á verönd, geymslu/búri, stofu/borðstofu með útgengi á verönd ásamt mjög góðu svefnlofti. Upphituð útigeymsla með tengi fyrir þvottavél. Veröndin er einstaklega rúmgóð með glæsilegu útsýni yfir sveitina og til fjalla. Heitur pottur með loki er á verönd.

Inngangur: Komið er inn af verönd á gang með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi til austurs. 
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi til norðurs. 
Svefnherbergi III: Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi til austurs. 
Baðherbergi: Góð innrétting með vaski. Handklæðaofn á vegg. Sturtuklefi. Útgengi er úr baðherbergi á verönd með heitum potti. Dúkur á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi. Opið inn í borðstofu/stofu. Góð innrétting með uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Opin, björt og rúmgóð með hurð út á verönd með glæsilegu útsýni. Mjög góð lofthæð.
Svefnloft: Gengið er upp um góðan stiga af gangi við anddyri. Rúmgott með miklu gistiplássi og fallegum gluggum. Opið niður í stofu.
Geymsla: Góð geymsla/búr er í húsinu á milli eldhúss og baðherbergis.
Útigeymsla: Upphituð og rúmgóð með aðgengi beint af verönd. Pláss til að geyma garðhúsgögn og grill. Þvottavél er í þessu rými. 

Hér gefst gott tækifæri til að eignast frábærlega vel staðsett sumarhús á útsýnislóð með miklu gistiplássi. Bústaðurinn hefur fengið gott viðhald og er einstaklega vel staðsettur í landi Úthlíðar þar sem ýmsa þjónustu er að finna ásamt 9 holu golfvelli. Í um það bil 10-15 mínútna akstursfjarlægð frá Geysissvæðinu, Laugarvatni, Reykholti og Flúðum þar sem jafnframt er mikla þjónustu og afþreyingu að finna, sundlaugar, veitingahús og verslanir.

Eignin Djáknavegur 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-5143, birt stærð 90,1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone