Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2014
95,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Útsýni
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
** STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU ** SÉRINNGANGUR ** ÚTSÝNISÍBÚÐ ** AUKIN LOFTHÆÐ ** DÝRAHALD LEYFILEGT ** Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi, aukinni lofthæð og stæði í bílageymslu. Íbúðin er á 3. hæð (nr. 305) í nýlegu lyftuhúsi að Holtsvegi 25, Urriðaholti í Garðabæ. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 95,8 m2, þarf af er 8,6 m2 geymsla á 1. hæð. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt sérgeymslu og hjólageymslu í sameign. Nánari uppl. veitir Margrét Rós lgf. s. 856-5858 eða margret@fstorg.is
Sækja söluyfirlit eignar hér
Um er að ræða fallega og vel skipulagða útsýnisíbúð í nýlegu lyftuhúsi í Urriðaholti í Garðabæ. Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í Urriðaholtsskóla, sem er leik- og grunnskóli og leikskólann Urriðaból, ásamt verslun og veitingastaði. Góðar almenningssamgöngur eru í nálægð sem og fallegar göngu- og hjólaleiðir um hverfið, en örstutt er í góð útivistarsvæði og óspillta náttúruna til að njóta útiverunnar.
Lýsing eignar:
Gengið er inn um sérinngang af svalargangi. Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Úr forstofu er gengið inn í bjart alrými sem rúmar vel bæði borðstofu og setustofu með parket á gólfi og útgengt á stórar suðvestur svalir með fallegu útsýni yfir Urriðavatn og nágrenni. Eldhús er opið innaf stofu með hvítri innréttingu og flísar á gólfi. Frá stofu er lítill gangur með tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi. Barnaherbergi er með fataskápum og parket á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parket á gólfi. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum með „walk-in“ sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Aukin lofthæð er í íbúðinni (ca 280 cm). Sérgeymsla (8,6m2) sem tilheyrir eigninni er inn af sameignargangi á 1. hæð, ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Eigninni fylgir sér bílastæði í bílastæðahúsi, merkt B13.
Um húsið - Holtsvegur 23-25:
Fjölbýlishúsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt, filt múrað og málað. Stigagangar eru einangraðir að utan og klæddir sléttu áli með innbrenndum lit. Gluggar eru málaðir samlímdir trégluggar, ísteyptir nema þar sem þeir koma í utanhúss klæðningu við stiga- og lyftuhús. Útihurðir eru lakkaðar og með 3ja punkta læsingu. Svalahandrið eru úr ryðfríu stáli og pólyhúðuð. Svalagólf er með steyptri yfirborðs áferð og flísalagðar ofan á. Bílageymsla er sílanhúðuð sjónsteypa. Þak er staðsteypt, vatnsvarið með þremur lögum af eldsoðinn tjörupappa. Þar ofan á einangrun, jarðvegsfilt og sjávarmöl og holtagras er endanlegt yfirborð.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. apr. 2021
49.100.000 kr.
54.400.000 kr.
95.8 m²
567.850 kr.
15. feb. 2016
32.250.000 kr.
37.500.000 kr.
95.8 m²
391.441 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024