Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
101,2 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 21. nóvember 2024
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Eskiás 3 íb104 , 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög vel skipulögð 3ja herbergja 101,2 fm íbúð með góðum herbergjum og fataherbergi í stærra herberginu. Íbúðin er á fyrstu hæð með sérafnotarétti og sér inngangi. Fallegt ljóst harðparket á gólfum, hvítir listar. Útgengi út frá hjónaherbergi í sameignilegan garð. Vandaðar innréttingar í eldhúsi og fataskápar frá GKS. Íbúðin er laus við kaupsamning.Bókið skoðun hjá Gunnari Bergmann í síma: 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Íbúð 104 á 1. hæð með 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi með þvottaaðstöðu, sérafnotareiti og sérgeymslu innan íbúðar. Rúmgott alrými og opið eldhús. Horn íbúð.
- Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
- Eldhústæki; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem og innbyggð uppþvottavél.
- Baðherbergi/þvottahús er forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
- Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe.
- Ljósleiðarar frá OR og Mílu
- Rafbílahleðslukerfi á sex stöðum við húsið.
Næg bílastæði eru fyrir framan húsið, í nágrenni eru fallegar gönguleiðir og stutt í þjónustu og verslanir við Garðatorg.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. nóv. 2023
68.550.000 kr.
82.900.000 kr.
101.2 m²
819.170 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024