Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1984
118,9 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Opið hús: 24. nóvember 2024
kl. 14:00
til 14:30
Opið hús: Hrísmóar 6, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 24. nóvember 2024 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagða 4 herbergja íbúð ásamt bílskúr við Hrísmóa 6 í Garðabæ.
Íbúðin er virkilega björt og vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, stórri og rúmgóðri stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi, rúmgóðum svölum, geymslu í sameign og bílskúr. Mjög snyrtileg sameign. Birt stærð skv. FMR er 118,9 fm2 þar af er íbúðin skráð 100,8 fm2 og bílskúr 18 fm2, geymsla er ekki inni í birtri fermetratölu.
Frábær staðsetning í hjarta Garðabæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, matsölustaði, skóla leikskóla, heilsugæslu, apótek o.fl.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Nýlegar framkvæmdir að sögn seljanda:
Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóður forstofuskápur er staðsettur í holi.
Eldhús: Góð innrétting á tveimur veggjum. Bjartur borðkrókur við glugga. Gert ráð fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Stofa / borðstofa: Stór og björt með gluggum á tvo vegu og útsýni til sjávar. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, góðir fataskápar. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Svefnherbergi 2: Bjart og gott herbergi með fataskáp. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Svefnherbergi 3: Bjart og gott herbergi með útgengi út á svalir. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri. Þessu herbergi var bætt við í rými sem áður var borðsstofa. Auðvelt er að breyta eigninni í upprunalegt horf, parket er undir vegg.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð eldri innrétting, baðkar og sturta.
Þottahús: Þvottahús er inn af eldhúsi. Dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur, efri skápar á vegg. Gluggi með opnanlegu fagi.
Bílskúr: Góður bílskúr með hita, heitu og köldu vatni, rafstýrður hurðaopnari.
Geymsla: Rúmgóð geymsla í sameign sem ekki er inni í birtri fermetratölu.
Ath! Íbúðin er ekki skv. upprunalegu skipulagi. Bætt hefur verið við herbergi þar sem er borðsstofa á teikningu.
Nánari upplýsingar veita:

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Íbúðin er virkilega björt og vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, stórri og rúmgóðri stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi, rúmgóðum svölum, geymslu í sameign og bílskúr. Mjög snyrtileg sameign. Birt stærð skv. FMR er 118,9 fm2 þar af er íbúðin skráð 100,8 fm2 og bílskúr 18 fm2, geymsla er ekki inni í birtri fermetratölu.
Frábær staðsetning í hjarta Garðabæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, matsölustaði, skóla leikskóla, heilsugæslu, apótek o.fl.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Nýlegar framkvæmdir að sögn seljanda:
- Hús múrviðgert og málað að utan árið 2023.
- Hiti settur í tröppur utanhúss 2023.
- Stigagangur málaður og skipt um teppi og lýsingu í stigangi árið 2023.
- Geymslugangur var einnig málaður á sama tíma.
Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóður forstofuskápur er staðsettur í holi.
Eldhús: Góð innrétting á tveimur veggjum. Bjartur borðkrókur við glugga. Gert ráð fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Stofa / borðstofa: Stór og björt með gluggum á tvo vegu og útsýni til sjávar. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, góðir fataskápar. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Svefnherbergi 2: Bjart og gott herbergi með fataskáp. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri.
Svefnherbergi 3: Bjart og gott herbergi með útgengi út á svalir. Fallegt eikarparket á gólfi með síldarbeinamynstri. Þessu herbergi var bætt við í rými sem áður var borðsstofa. Auðvelt er að breyta eigninni í upprunalegt horf, parket er undir vegg.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð eldri innrétting, baðkar og sturta.
Þottahús: Þvottahús er inn af eldhúsi. Dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur, efri skápar á vegg. Gluggi með opnanlegu fagi.
Bílskúr: Góður bílskúr með hita, heitu og köldu vatni, rafstýrður hurðaopnari.
Geymsla: Rúmgóð geymsla í sameign sem ekki er inni í birtri fermetratölu.
Ath! Íbúðin er ekki skv. upprunalegu skipulagi. Bætt hefur verið við herbergi þar sem er borðsstofa á teikningu.
Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. ágú. 2012
23.300.000 kr.
26.500.000 kr.
118.9 m²
222.876 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024