Lýsing
Miklaborg kynnir: Íbúð 407 er 3ja herbergja vel skipulögð íbúð á 4. hæð með stæði í lokaðri bílgeymslu og svölum. Hlýlegt heimili með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum, flísalögðu anddyri og baðherbergi. Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi. Stílhrein hönnun og vönduð gæði. Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. Góð 3ja herbergja íbúð. Litaþema er Grásteinn. Íbúðin afhendist fullbúin án megin gólfefna.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur. Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
Sjá nánar www.eirhofdi.is
Nánari upplýsingar veitir Rebekka Rós Rósinberg löggiltur fasteignasali í síma 776-8624 eða rebekka@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: er með með fataskápum sem ná upp í loft.
Hjónaherbergi: Svefnherbergi með fataskápum sem ná upp í loft.
Svefnherbergi: Með fataskáp sem nær upp í loft.
Eldhús: Opið inn í stofu með eyjuborði. Falleg sérsmiðuð innrétting. Eldhús skilast með veggofni og span-helluborði. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: Stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á svalir er snúa í vestur.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu sem er með Unidrain línurist og sturtugleri. Vegghengd salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu í báðum baðherbergjum. Öll blöndunartæki eru frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. númer B44
Geymsla er 15,9 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Rebekka Rós Rósinberg löggiltur fasteignasali í síma 776-8624 eða rebekka@miklaborg.is
Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Steinn Andri Viðarsson í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is