Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
svg

39

svg

35  Skoðendur

svg

Skráð  21. des. 2024

fjölbýlishús

Laufvangur 5

220 Hafnarfjörður

74.900.000 kr.

687.787 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2077322

Fasteignamat

62.500.000 kr.

Brunabótamat

47.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1970
svg
108,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna fallega íbúð að Laufvangi 5, Hafnarfirði

Hér er um að ræða góða fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi á frábærum stað í Hafnarfirði.
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og búr/geymslu, auk sérgeymslu í kjallara.
Eignin er skráð skv. þjóðskrá 108,9 m² og þar af er geymsla í kjallara skráð 7,6 m².
 
Nánari lýsing:
Forstofa / hol er rúmgott rými með tveimur góðum skápum og parketi á gólfi. Gengið er inn í forstofu úr snyrtilegri sameign.
Stofa / borðstofa eru samliggjandi í parketlögðu björtu rými. Gengið er út á góðar svalir úr stofunni.
Eldhús er með hvítri innréttingu og nýjum borðplötum. Borðkrókur er við glugga.
Inn af eldhúsi er gott þvottahús með glugga og ágætri innréttingu Lagnir fyrir vask. Inn af þvottahúsi er lítið búr /geymsla. Þessi rými eru flísalögð.
Herbergisgangur er parketlagur og þaðan er útgengt á góðar svalir. Á ganginum er skápur með rennihurðum sem nýtist fyrir herbergin.
Hjónaherbergi er parketlagt og með nýlegum skáp.
Herbergi 2 og 3 eru parketlögð.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum. Góð vaskinnrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og baðkar.
Sérgeymsla er í kjallara hússins, og þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
-Skipt var um parket og gólflista á eigninni 2024. Einnig var skipt um innihurðir.

Björt og falleg íbúð í þessu barnvæna hverfi á frábærum stað í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla og alla almenna þjónustu.

Upplýsingar frá seljanda:
Framkvæmdir á vegum sameiginlegs húsfélags Laufvangs 1-9
2024 - Framkvæmdir í gangi: Frárennslislagnir endurnýjaðar eftir þörfum, niðurföll inni og úti endurnýjuð, o.fl. (nánar útlistað í söluyfirliti)
2020 - Skipt um glugga og gler á framhlið hússins.
2020 - Málun og múrviðgerðir utanhúss (þar sem ekki er klæðning).


Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. júl. 2007
18.390.000 kr.
19.900.000 kr.
108.9 m²
182.736 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone