Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
einbýlishús

Esjubraut 33

300 Akranes

95.000.000 kr.

533.708 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2100082

Fasteignamat

80.550.000 kr.

Brunabótamat

88.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
178 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni

Lýsing

Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:

Esjubraut 33, Akranesi     BÍLSKÚR 50 FM og frábært útsýni til norðurs, yfir Kalmansvíkina og þaðan til fjalla.

127,6 fm einbýlishús, með  50,4 fm. bílskúr.   Samtals 178 fm. 

Lýsing:

Bíslag fyrir fram aðalinngang. 
Góð forstofa með flísum á gólfi, þaðan sem er innangengt í bílskúrinn. Gestasnyrting.  
Úr forstofu er komið inní hol, stofu og borðstofu með parketi á gólfum.  Halogen loftljós í stofu.   Dyr útá stóra verönd úr stofu. 
Eldhús er með hvítri innréttingu og kork á gólfi.  Innaf eldhúsi er búr með hillum og þvottaherbergi, dyr úti bakgarð.   Sér inngangur bakatil í lagna/inntaksherbergi
Glerhurð er fyrir svefnherbergisálmu.   
3 svefnherbergi, parket og dúkur á gólfum.  Góðir skápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi með innréttingu, flísum á gólfi, baðkari m.sturtu og góðri innréttingu. 
Bílskúr, stór og rúmgóður, búið að innrétta herbergi (með glugga)  Innangengt úr forstofu. Dyr útí bakgarð.
Malbikað bílaplan.
Vel hefur verið hugsað um garðinn sem  er vel gróinn með fjölærum plöntum, bæði í reitum og pottum. Fyrir framan  húsið er garðurinn  að hluta hellulagður  og þar er búið er að koma fyrir gróðurhúsi (vantar glerið) Stór timburverönd sem nær yfir það sem eftir er að garðinum fyrir framan húsið fyrir utan nokkra fermetra þar sem að eru gróðurreitir.  Á veröndinni er búið að byggja yfir heita pottinn og útbúa geymslu.  Garðurinn er afgirtur með fallegum skjólborðum.   Bakvið húsið  eru nytjajurtir og berjatré.

Annað:
Bílskúrinn var stækkaður og endurbyggður frá grunni 2009 ásamt bíslagi, forstofu og gestasnyrtingu 2009. (timburhluti hússins) Nýbyggingarhlutinn er klæddur með steni.  Eftir að klæða bakhlið sem snýr að WC, steniefni fylgir.  
Gluggar og gler í stofu og eldhúsi auk hurðar útá veröndina var endurnýjað 2017.  Gler og gluggar í herbergjum voru endurnýjaðir 2009. Gluggar frá PGV framtíðarform í Grindavík. 
Ofnalagnir endurn. úr stofu yfir í nýbygginguna. Þrýstijafnir settur upp 2024.  Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í eldhúsi.   Suðurhliðin er að hluta klædd með steniklæðningu. (svefnherbergishlutinn) 
Frárennslilagnir voru myndaðar undir húsi og út í götu vorið 2008 og voru í lagi þá. 

Nánari upplýsingar veitir.
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali soffia@domusnova.is / sími 846-4144


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

img
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domusnova fasteignasala
Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
img

Soffía Sóley Magnúsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone

Soffía Sóley Magnúsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur