Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is
Eignin Laugateigur 15 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-9168, birt stærð 78.2 fm, þar af er sérgeymsla í sameign 3,3fm.
Fasteignamat fyrir árið 2025 skv. HMS er 58.650.000kr
Framkvæmdir undanfarin ár:
2014: Skólplagnir fóðraðar
2016: Nýtt dren lagt á allar hliðar hússins, lóð löguð, ný gangstétt lögð með snjóbræðslu í kringum húsið og settar upp ruslageymslur og útiljós við gangstíg upp að húsi. Klóak endurnýjað út í brunn.
2020: Múrviðgerðir og endursteining: Hús ástandsskoðað af verkfræðistofu og í framhaldi farið í múrviðgerðir og endursteiningu á öllu húsinu. Að auki skipt út gluggum eftir þörf, þá 2 gluggum í kjallaraíbúð (stofu og geymslu) og 1 í sameign (hitakompu).
2022: Þak endurnýjað (járn að fullu og tréverk eftir þörfum) og skorsteinn fjarlægður.
2023: Hellulagning undir svölum í garði.
2023: Rafmagnstaflan sett inn í eldhús fyrir þau tæki sem þar eru.
Nánari lýsing:
Inngangur: Gengið er inn að aftan, norðan megin við hús
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Stofa: Rúmgóð og björt með góðum gluggum í 2 áttir, til suðurs og vesturs.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, ofni, innbyggðum gufugleypi, helluborð og uppþvottavél.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Flísalögð "walk in sturta", handklæðaofn, klósett ásamt skápa innréttingu með vask og spegli fyrir ofan. Raki er í vegg við sturtu sem samkvæmt mati tryggingafélags er vegna frágangs á sturtu og því er þörf á yfirferð á frágangi eða endurnýjun
Geymsla: Sérgeymsla staðsett í sameign, 3,3fm.
Sameign: Hluti sameignar nýttur sem forstofa eignar með vilyrði frá öðrum eigendum í húsi. Fataskápur eignar fyrir framan inngangshurð inn í íbúð. Sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla íbúðar.
Garður: Sameiginlegur fallegur og snyrtilegur tyrfður garður beggja megin við hús. Lóð löguð 2016 þar sem lögð var ný gangstétt með snjóbræðslu í kringum húsið, settar upp ruslageymslur og útiljós við gangstíg upp að húsi.
Góð 3 herbergja íbúð í fallegu og mjög vel viðhöldnu húsi í afar vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Teigunum. Stutt í fjölbreytta verslun og þjónustu allt í kring, glæsilegt útivistarsvæði í Laugardalnum með fallegum hjóla- og gönguleiðum ásamt leik- og grunnskólum í göngufjarlægð. Afar fjölbreytt flóra af íþrótta og tómstundarstarfi í nágrenninu. Laugardalslaugin, flaggskip World Class, fjölskyldu- og húsdýragarðurinn ásamt íþróttasvæði Þróttar og Ármanns allt í göngufjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.