Lýsing
Um er að ræða 70,2m2 skrifstofu og verslunarhúsnæði á neðri hæð í steinsteyptu tveggja hæða húsi byggðu árið 1958.
Eignin skiptist í forstofu, afgreiðslusal, eitt skrifstofuherbergi, salerni, kaffistofu og geymslu. Á öllum gólfum er dúkur nema á salerni og forstofu þar sem eru flísar.
Stórir gluggar eru á framhlið sem gefa góða birtu inn í rýmið. Húsinu tilheyrir bílastæði við gafl hússins.
Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að eignast eign með möguleika afar miðsvæðis í Hólminum fagra. Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.